Í fyrragær sendi ég þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna póst með tveimur einföldum spurningum.
Hvort þeir styddu (eða væru ánægðir með) annars vegar Seðlabankastjórnina, og hins vegar yfirstjórn Fjármálaeftirlitsins.
Spurningarnar voru að sjálfsögðu í framhaldi af því að það vekur óendanlega furðu ekki aðeins hérlendis heldur ekki síður í útlöndum að fólkið á þessum póstum skuli vera enn við störf, eftir mikilfenglegasta peningahrun vestræns ríkis í sögunni.
Aðeins tveir þingmenn hafa hingað til mátt vera að því að svara.
Þó kvarta þingmenn sjálfir iðulega undan því að hafa lítið að gera og á Edduverðlaunahátíðinni áðan líkti Ágúst Ólafur varaformaður Samfylkingar Alþingi við Latabæ, ef ég skildi hann rétt.
Auðvitað í hálfkæringi, en samt!
En ég lofaði að birta svör þeirra þingmanna sem gæfu skýr svör.
Ellert B. Schram segir einfalt og gott "nei" við báðum spurningum.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir minnir á að hún hafi áður sagt að bæði Seðlabankastjórnin og yfirstjórn FME eigi að víkja.
Þá er því til skila haldið. En enn veit ég ekki hvað öðrum þingmönnum finnst.
Blogg
TVEIR ÞINGMENN HAFA SVARAÐ
21:30 › 16. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
