ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SKELFILEGUR FUNDUR MEÐ MATHIESEN?

17:01 › 16. nóvember 2008


Mér finnst hressandi málflutningur þeirra Indefence.is manna. Einhverjir eru að skamma þá fyrir að vilja ekki horfast í augu við "ábyrgð okkar Íslendinga" og kannski er okkur ekki stætt á því að hafna öllum Icesave-kröfum eins og þeir vilja.

En mér finnst þeir samt viðkunnanlegri heldur en iðrandi flagellantar eins og Gunnar Smári sem gengur nú um í hærusekk, dreifir í kringum sig hálfbrunninni ösku og tuldrar um óhjákvæmilegt heimshrun vegna synda vorra.

Í Fréttablaðinu í dag er viðtal við tvo Varnarliða, Magnús Helga og Sigmund Davíð. Ég hvet fólk til að lesa það. Burtséð frá viðhorfum þeirra til Icesave-deilu er skemmtileg bjartsýni ríkjandi í viðtalinu.

Nema náttúrlega þegar talið snýst um hin vonlausu íslensku stjórnvöld.

Þeir félagar - báðir með ýmis sambönd á góðum stöðum í Evrópu - segja:

"Það er svo bara sagt að það sé ekki hægt að ræða við íslensk stjórnvöld. Í vikunni var fundur í Brussel með Þórunni Sveinbjarnardóttur og góðum hópi embættismanna, sem okkur er sagt að hafi farið bara nokkuð skammlaust fram. Hins vegar var fundur í síðustu viku með Árna Mathiesen sem var víst bara skelfilegur."

Má það ekki vera partur af hinu "nýja Íslandi" að við fáum að vita slíka hluti? Ekki bara frétta af þeim á skotspónum og undir rós?

Megum við fá að vita hvað er að gerast?







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?