ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SAMFYLKINGIN BÚIN?

10:13 › 16. nóvember 2008


Ég hef verið að hvetja Samfylkinguna til dáða að undanförnu.

Til að taka á sig rögg og gera annað af tvennu.

Annaðhvort slíta stjórnarsamstarfinu eða neyða Sjálfstæðisflokkinn til að snúa við blaðinu og horfast í augu við gerðir sínar undanfarin 17 ár.

Smáskammtalækningar duga ekki.

Og hvort heldur yrði ofan á, verður að boða til kosninga eigi síðar en snemma í vor.

En Samfylkingin virðist ætla að láta Sjálfstæðisflokkinn ráða algjörlega ferðinni. Hún lætur sig hafa það að taka þátt í því með Sjálfstæðisflokknum að gefa þjóðinni vægustu sort af gleðipillum á föstudögum klukkan fjögur, svo sem fæstir mæti á Austurvöll.

Ekki gott, vægast sagt ekki gott.

Ég er ekki í Samfylkingunni, en jafnvel góðir samfylkingarmenn eins og Pétur Tyrfingsson og Kjartan Valgarðsson eru búnir að fá nóg af þýlyndinu í garð Sjálfstæðisflokksins.

Þið, samfylkingarfólk, voruð ekki kosin á Alþingi til að vera kurteis og tillitssöm við Geir H. Haarde.

Eða láta Framsóknarflokkinn (!!!) taka frumkvæðið í Evrópumálum.

Heldur til að vinna fyrir íslenska þjóð.

Hvar er hugrekki Ingibjargar Sólrúnar? Hvar er skap Össurar Skarphéðinssonar?

Eru þau bæði orðin dulur fyrir Geir Haarde og telja mikilvægara að þræða þær villigötur sem hann telur vænlegastar til að bjarga sínu andliti, en ryðja nýjar brautir fyrr íslensku þjóðina?










ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?