ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

RÆTUR OKKAR ALLRA

09:24 › 16. nóvember 2008


Ég biðst innilega afsökunar á því að birta hér mynd af sjálfum mér. Ég lofa að gera það aldrei aftur!

Ég er bara svo stoltur af gripnum sem ég er með í höndunum að ég ræð ekki almennilega við mig.

"Saga mannsins, frá örófi fram á þennan dag."

Litla bókaforlagið mitt, Skuggi, ákvað í sumar að leggja mestalla sína orku og lausafé í að koma út þessari góðu mannkynssögu. Á tímabili vorum við hálfhrædd um að hafa reist okkur hurðarás um öxl.

Fjöldi manns lagði nótt við dag við að skrifa, taka saman, endursegja, þýða, brjóta um, prófarkalesa. Handtökin voru endalaus.

En nú er bókin komin. Öll mannkynssagan á 650 síðum. Þvílík ógrynni af myndum að ég veit ekki til að nokkur maður hafi talið þær, en gefa bókinni ómetanlegt gildi. Samt er þetta handhæg bók og meðfærileg.

Aðallega er ég samt stoltur yfir því að hafa með þessari bók gefið Íslendingum kost á að kynnast allri sögu mannkynsins, þar á meðal í fjarlægum ríkjum og heimshlutum sem við vitum alltof lítið um.

Við verðum jú að þekkja sögu okkar, ekki síst þegar bjátar á. Sagan geymir rætur okkar allra.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?