Ég sá minnst af blaðamannafundunum sem Geir Haarde hélt í gær. Þurfti að fara með son minn ungan í fótbolta.
Því missti ég af tveimur alveg ótrúlegum mómentum sem Grímur Atlason vekur athygli á á bloggsíðu sinni.
Þegar fréttamaður Stöðvar 2 minntist á að orðspor Íslands á alþjóðavettvangi hafi beðið hnekki, þá svaraði Geir með þjósti:
"Hver segir það?"
Og þegar fréttamaður sagði augljóst að peningamálastefna Seðlabankans hefði brugðist, þá svaraði Geir aftur (ótrúlegt en satt):
"Hver heldur því fram?"
Fréttamaðurinn svaraði að vonum að flestir hagfræðingar væru sammála um þetta.
En Geir hélt áfram að haardera: "Við tökum ekki afstöðu til þess."
Nei? "Við" tökum ekki afstöðu til þess hvort peningastefna Seðlabankans hafi brugðist. Hvaða "við"? Á Geir við ríkisstjórnina? Er Samfylkingin sammála þessu mati?
Það verður að vekja þennan mann. Og samtímis að kveða niður í honum hrokann.
Það er hægt að byrja á því verki á Austurvelli klukkan þrjú í dag.
Blogg
"VIÐ TÖKUM EKKI AFSTÖÐU TIL ÞESS"
10:12 › 15. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
