ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÓMERKILEG VIÐBRÖGÐ STEINGRÍMS J.

07:45 › 15. nóvember 2008


Ósköp fannst mér lítið koma til Steingríms J. Sigfússonar þegar hann brást við ákvörðun Sjálfstæðisflokksins um "athuga Evrópumálin".

Sjálfum fannst mér sú ákvörðun ómöguleg af því hún gekk svo skammt, en Steingrími þótti alltof langt gengið, greinilega.

Hann sagði í þeim yfirlætisfulla tóni sem hann temur sér stundum að "lítið legðist" nú fyrir Sjálfstæðisflokkinn, er hann "velti sér um hrygg" í Evrópumálum "bara af því" að Samfylkingin krefðist þess.

"Bara af því?" Eru það ekki meira en 70 prósent landsmanna sem vilja nú sækja um aðild að Evrópusambandinu?

Og eru ekki allir hagfræðingar sammála um að ef við hefðum verið í sambandinu hefði hrunið hér á landi hvergi nærri orðið jafn alvarlegt og við þurfum nú að þola?

Og næstum því alveg allir sammála um að íslenska krónan sé ónýtur gjaldmiðill?

Allt þetta beinlínis æpir á að allt almennilegt fólk "athugi Evrópumálin".

En þá kemur Steingrímur J. með þessar yfirlýsingar.

Í fyrsta lagi talar hann eins og það skipti mestu máli hvað fyrirbærið Sjálfstæðisflokkur segir, gerir eða veltir sér. Ekki fólkið innan hans. Steingrímur virðist fastur í flokkakerfinu.

Og í öðru lagi - eins og það sé eitthvað til að hæðast að, þegar þetta fyrirbæri Sjálfstæðisflokkurinn mjakar sér (alltof hægt) í átt til vilja almennings.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?