ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

KÆRI ÞINGMAÐUR

18:17 › 15. nóvember 2008


Sendi þingmönnum ríkisstjórnarflokkanna tveggja rétt í þessu póstinn hér að neðan.

Mun birta þau svör sem ég fæ, svo fremi sem eitthvað skýrt og skilmerkilegt verði í þeim að finna, ekki tómar málalengingar.

Pósturinn er svona:

"Ágæti þingmaður.

Við erfiðar aðstæður líkt og núna er að sjálfsögðu mjög mikilvægt að eingöngu hinir hæfustu einstaklingar sem völ er á gegni störfum fyrir íslenska ríkið og íslensku þjóðina. Þar hljótum við að vera sammála.

Af því tilefni langar mig til að fá svar þitt við þeirri spurningu hvort þú sér ánægð/ánægður með frammistöðu bankastjórnar Seðlabanka Íslands undanfarið ár og einkum undanfarnar vikur og mánuði.

Og telur þú að enginn annar mundi gera betur en núverandi stjórn?

Einfalt já/nei svar væri ákjósanlegt.

Ennfremur hvort þú sért ánægð/ánægður með störf Fjármálaeftirlitsins undanfarið ár eða svo.

Aftur væri einfalt svar ákjósanlegt.

Ef þú ert ekki ánægð/ánægður væri gott að fá að vita hvers vegna núverandi stjórnendur sitja þá enn bæði í Seðlabanka og Fjámálaeftirliti í þínu skjóli.

Ég áskil mér rétt til að birta svar þitt opinberlega, enda er hér um opinber mál að ræða.

Með bestu kveðju,

Illugi Jökulsson"

Ég ætlast til þess að fá svör frá þessu góða fólki sem fyrst. Það er á launum frá mér en virðist hafa mjög lítið að gera um þessar mundir. Og flest af því hefur meira að segja aðstoðarmenn á launum frá mér líka. Svo það er ekki ofverkið þessa fólks að ansa mér.



- - - - -


Núna, upp úr hádegi á sunnudegi, hafði enginn þingmaður ríkisstjórnarflokkanna fundið sér tíma til þess að svara einföldum spurningum um stuðning þeirra við Seðlabankann og FME.


Svakalega sem hlýtur að vera mikið að gera hjá þeim greyjunum.














ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?