ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

JÁ, VIÐ GETUM ÞAÐ

08:48 › 15. nóvember 2008


Ætlar og getur Samfylking sætt sig við að Sjálfstæðisflokkurinn haarderi í Evrópumálunum í tæpa þrjá mánuði?

Þjóðin á að bíða, bara svo einhverjum fauskum í Valhöll líði ögn betur?

Fái ögn lengri tíma til að sætta sig við aðildarumsókn, og finnist ekki teppinu hafa verið kippt undan þeim?

En mér er alveg sama um líðan fauskanna í Valhöll. Þeir hafa gott af því að teppunum sé kippt undan þeim.

Ég vil að Samfylkingin taki á sig rögg. Hugsi um íslensku þjóðina, ekki um fauskana í Valhöll.

Tíminn er núna.

Núna.

Ekki eftir þrjá mánuði.

Ég veit að það er alveg rosalega einstaklega lummulegt að fá inspírasjón af amerískum forseta, en "já, við getum það".

Hættið þessum haarderingum, Samfylking.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?