ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÉG ÆTLA AÐ MÁLA MÓTMÆLTASPJALD ...

12:07 › 15. nóvember 2008


... og fara með niður á Austurvöll klukkan þrjú.

Það verður í fyrsta sinn á ævinni sem ég held á mótmælaspjaldi.

Aldrei kunnað við það, þó ýmsa mótmælafundi hafi ég mætt á gegnum tíðina.

Ég hugsa að ég máli: "Geir er gagnslaus" á spjaldið mitt.

Hann er svo ótrúlegur sleði og hrokagikkur í senn. Mótmælin verða að fara að snúast gegn honum.

Það er annars óðum að birta yfir hér í Reykjavík, og ætlar að viðra vel til mótmæla.

Ég endurtek bara það sem ég skrifaði í gær eða fyrradag, hver sá sem á í rauninni heimangengt en mætir ekki, hann er í reynd að lýsa stuðningi við spillt valdakerfið.

- - - -

Fundurinn var góður. Góðar og kjarnyrtar ræður.

Eftir fundinn fór ég með mótmælaspjaldið mitt að stjórnarráðinu og lagði það snyrtilega við dyrnar handa Geir.

Það leið varla nema mínúta, þá var húsvörður búinn að kippa því úr augsýn inn í húsið.

Það skal tekið fram að spjaldið var gjöf til Geirs og ég ætlast því til þess að viðkomandi húsvörður færi honum það, en hendi því ekki bara í ruslið.
















ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?