Eitt af því fjölmarga sem ég skil ekki er þetta:
Hvernig í ósköpunum getur Davíð Oddsson trúað því að hann eigi skilið að vera Seðlabankastjóri íslensku þjóðarinnar?
Sér hann virkilega ekki að hann er óhæfur, og raunar hættulegur? Eða er honum alveg sama?
Hvernig í ósköpunum getur Jónas Fr. Jónsson yfirmaður Fjármálaeftirlitsins trúað því að hann eigi skilið að sitja áfram í launaháu embætti á vegum íslensku þjóðarinnar?
Finnst honum, þegar hann fer að sofa á kvöldin, að hann sé flottur tappi sem eigi skilið góð laun fyrir vel unnin störf í þágu þjóðarinnar?
Og þetta gildir um fleiri.
Eru þessir menn allir blindir? Eða bara siðlausir? Eða jafnvel viti sínu fjær?
Er það kannski fyrst og fremst verkefni fyrir sálfræðinga að skýra af hverju þessir menn skammast sín ekki?
Blogg
VERKEFNI FYRIR SÁLFRÆÐINGA?
11:30 › 14. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
