ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SPILLTARI EN ÚKRAÍNUMENN

10:48 › 14. nóvember 2008


Bloomberg-fréttastofan er, eins og fleiri, að furða sig á því að eftir mesta fjárhagshrun sem eitt land hefur mátt þola séu allir sem báru ábyrgðina enn á sínum stöðum í kerfinu.

Menn hrista auðvitað hausinn út af þessu um allan heim.

"Aðgerðir [Davíðs Oddssonar] og ummæli á síðustu vikum og mánuðum hafa gert það að
verkum að fjöldi erlendra stórblaða hefur birt greinar sem hæðast að
honum og hæðast í leiðinni að íslensku þjóðinni."

Þetta voru ekki mín orð. Þetta skrifaði hagfræðidoktor frá Harvard og lektor við Columbia-háskóla, og gjarnan einn helsti efnahagsráðgjafi Geirs Haarde: Jón Steinsson.


Og þetta á ekki minnsta þáttinn í öllum þeim lokuðu dyrum sem við höfum mætt þar sem við höfum dúkkað upp með betliskálina okkar.

Lars Christiansen, sérfræðingur hjá Danske Bank, furðar sig t.d. á því í viðtali við Bloomberg að Úkraína, eitt spillasta land í heimi, skuli hafa fengið alla heimsins fyrirgreiðslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum en við ekki.

Auðvitað dugar ekki að kenna bara vondum Bretum og Hollendingum um það.

Það er líka okkur sjálfum að kenna.

Við verðum að horfast í augu við að umheimurinn lítur svo á að við séum enn spilltari en Úkraína.

Og er endilega víst að það sé rangt mat?

Nema við gerum eitthvað í málinu, og það strax!

Hver sá sem EKKI MÆTIR á fundinn á Austurvelli á morgun, er í raun að lýsa stuðningi við hin spilltu stjórnvöld Íslands.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?