Geir Haarde boðaði til blaðamannafundar á föstudaginn var. Hann og Björgvin komu þar og sögðu ekkert.
Tilgangurinn var augljóslega sá að gefa fólki samt þá tilfinningu að ríkisstjórnin væri með fingurinn á púlsinum.
Svo færri myndu mæta á mótmælafundinn daginn eftir?
Vonandi verður blaðamannafundurinn í dag ekki alveg jafn innilega tilgangslaus.
Vonandi verður tilkynnt að þar sé búið að koma Icesave-málinu í einhvern farveg.
Vonandi verður tilkynnt um alvöru ráðstafanir til bjargar illa stöddu fólki á Íslandi, ekki bara í Bretlandi og Hollandi.
Vonandi verður tilkynnt um alvöru rannsókn á bankahruninu með tilstyrk útlenskra sérfræðinga, ekki aðeins nýjan saksóknara Björns Bjarnasonar.
Vonandi verður tilkynnt um tafarlausa umsókn um inngöngu í ESB.
Ekki aðeins að á fundi inni í kústaskap í Valhöll hafi kannski verið ákveðið að hefja ef til vill umræðu við sjálfstæðisfélagið á Krummaskuði um það að máske skyldi opnað á þann hugsanlega möguleika að einhvern tíma í framtíðinni sé líklegt að hvísla megi þessum valkosti að einhverjum í draumi.
En hvað svo sem koma mun fram á þessum blaðamannafundi má það ekki koma í veg fyrir að fólk mæti á mótmælafundinn á Austurvelli klukkan þrjú á morgun.
Auðvitað er blaðamannafundurinn í aðra röndina hugsaður sem brella til að fá sem fæsta á þann fund.
En látið ekki blekkjast!
Mætum öll!
Blogg
LÁTIÐ EKKI BLEKKJAST!
13:34 › 14. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
