ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

AUÐKÝFINGAR LEITA Í RUSLATUNNUM

08:14 › 14. nóvember 2008


Sigurbjörg Árnadóttir hefur verið dugleg að draga fyrir okkur upp dökka mynd af þeirri kreppu sem í vændum er, nú síðast í DV í dag.

Og hún tekur dæmi frá kreppunni í Finnlandi í upphafi tíunda áratugar síðustu aldar, þegar samfélagið hrundi með skelfilegum afleiðingum.

Það er þarft og gagnlegt að fá þessa mynd.

Mér finnst hins vegar merkilegt að það dæmi sem Sigurbjörg tekur ævinlega um hinn botnlausa hrylling kreppunnar í Finnlandi er að auðkýfingar og bankastjórar hafi verið farnir að leita að mat í öskutunnum.

Ég er aftur á móti svo skelfilegt kvikindi að mér þætti það eiginlega bara fyndið ef ég rækist á Hannes Smárason að gramsa í öskutunnunni minni.

Svo mundi ég að vísu bjóða honum pulsu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?