ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

SÍÐASTI SÉNS SAMFYLKINGAR

15:07 › 13. nóvember 2008


Ég veit ekki hvað er eiginlega að Samfylkingunni.

Heldur hún virkilega að það sé líðandi að taka stórar ákvarðanir um framtíð þjóðarinnar eftir hrunið í bakherbergjum og í einhverju makki við menntaskólaklíku Sjálfstæðisflokksins og Zetuskrifarana?

Ef það er rétt að ríkisstjórnin sé að "íhuga" að sækja um aðild að ESB, þá vil ég fá að vita það.

Því það kemur mér við.


Ekki síður en Ingibjörgu Sólrúnu, Össuri, Björgvini G., Jóhönnu Sigurðardóttur, Helga Hjörvar, Lúðvík Bergvinssyni, Árna Páli, Katrínu Júl og hvað þau heita öll, þingmennirnir.

Það er algjörlega ólíðandi að þetta fólk skuli telja sig þess umkomið að makka um framtíð mína án þess að ég fái neitt um það að vita, fyrr en eftir á.

Ætla þau að fyrirgera alveg öllu því trausti sem eftir er á þeim?
Af hverju fékk ég ekki að vita um gerðardóminn sem var nærri búið að mynda utan um Icesave-málið? Og af hverju fæ ég ekki að vita á hvaða stigi það mál er nú? Mun það skemma eitthvað málið þó ég viti um hvað er verið að tala?

Og ekki fimbulfamba um að þetta séu flókin mál og erfið. Mér er alveg sama. Ég vil líka fá að kynna mér flókin mál og erfið. Ég ræð við það, ekki síður en Kristján Möller, held ég jafnvel.

Eða fimbulfamba um að það sé flókið mál að ná samkomulagi við Sjálfstæðisflokkinn.

Ef Sjálfstæðisflokkurinn er enn tregur í taumi varðandi þær aðgerðir sem verður að gera, þá vil ég fá að vita það líka.

Ég vil ekki þetta venjulega póltíska baktjaldamakk sem á ekki minnstan þátt í að landið er nú nærri gjaldþrota.

Skiljiði það ekki, samfylkingarfólk?

Að þið eruð á síðasta séns?

Við viljum fá opið samfélag.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?