ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Í GÆR VAR EKKI GÓÐUR DAGUR HJÁ HENNI ...

06:07 › 13. nóvember 2008



Gott og blessað að spara í utanríkisþjónustunni, því hef ég lengi verið meðmæltur.

En að skipa sama dag Kristínu Árnadóttur í nýtt sendiherraembætti er ... tja, vægast ekki sniðugt.

Já, reyndar er það alveg óskiljanlegt og ég botna ekki í hvernig Ingibjörgu Sólrúnu datt þetta í hug.

Það getur vel verið að Kristín sé kjarnorkukona og líkleg til að vinna stórgott starf í hinni feysknu utanríkisþjónustu.

En við núverandi aðstæður hækkar maður ekki vinkonu sína í tign, launum og/eða hlunnindum.

Ef hún vill endilega fá Kristínu til starfa biður hún hana amk að bíða með að fá launahækkunina þangað til þetta land á krónu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?