ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FÍFLAGANGUR

22:03 › 13. nóvember 2008


Stjórn fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akranesi hefur ályktað að Davíð Oddssyni Seðlabankastjóra beri að víkja.

Þetta þykir ógurlega merkilegt vegna þess að á Akranesi er innsti koppur í búri Sjálfstæðisflokksins systir Ingu Jónu eiginkonu Geirs Haarde.

Þetta eiga sem sagt að vera leynd skilaboð til Davíðs um að Geir Haarde styðji hann ekki mikið lengur.

Mér verður eiginlega illt.

Í hrunadansinum hér, þarf Sjálfstæðisflokkurinn enn að fara krókaleiðir undir rós?

Hvað heldur þessi flokkur að hann sé?


- - -

Síðari tíma viðbót:

Athugið að mér þykir ekkert að sjálfri ályktun sjálfstæðismannanna á Akranesi. Hún er góðra gjalda verð og mættu fleiri sjálfstæðismenn taka sér Skagamenn til fyrirmyndar.

Ég var fyrst og fremst að agnúast út í að enn skuli sú Kremlarlógía viðgangast í þessu kremlarlausa landi að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að fara einhverjar undarlegar krókaleiðir til að segja sannleikann.

Í þessu tilfelli um Seðlabankastjórann.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?