Við (ég leyfi mér að tala hér í nafni íslensku þjóðarinnar) erum fyrir allnokkru búin að gefast upp á því að bíða eftir að Geir Haarde segi okkur sannleikann um ástand mála.
Þrátt fyrir vafalaust ágæta viðleitni Geirs getur hann bersýnilega ekki losað sig úr þeim viðjum að honum beri fyrst og fremst að huga að hagsmunum Sjálfstæðisflokksins í öllum sínum aðgerðum.
Eða réttara sagt þeirrar litlu menntaskólaklíku sem hann lítur á sem Sjálfstæðisflokkinn.
Og sem er á margvíslegan hátt samtvinnuð bæði bankahruninu og efnahagskreppunni og ber þunga sök á því hvernig komið er.
Þar að auki virðist Geir einfaldlega telja sannleikann þreytandi óþarfa sem við höfum ekkert við að gera. Þeir sem biðja um sannleikann séu "fífl" og "dónar".
Af því leiðir að á þeim tímapunkti þegar allra mikilvægast er að fólk þurfi ekki að vaða um í villu og svíma þá fáum við fáránlega lítið að vita.
Við trúum því til dæmis ekki að við getum ekki fengið að vita á hvaða stigi möguleg aðstoð frá IMF er stödd, eða hvaða skilyrðum hún verður bundin.
Vilt þú segja okkur sannleikann, allan sannleikann og ekkert nema sannleikann?
Blogg
OPIÐ BRÉF TIL INGIBJARGAR SÓLRÚNAR
12:18 › 12. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
