ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ILLA GEFIN RÍKISSTJÓRN

13:48 › 12. nóvember 2008


Ríkisstjórnin vill allt til vinna að halda fólki rólegu.

Daufu og rólegu.

Þannig er minni hætta á að hróflað verði við henni.

En jafnvel þetta mun reynast þessari nær óhæfu ríkisstjórn um megn.

Hún virðist ekki átta sig á því að Íslendingar myndu fyrirgefa henni ýmislegt ef þeir hefðu á tilfinningunni að komið væri fram við þá af heiðarleika.

En það hafa menn ekki á tilfinningunni nú.

Því munar ekki nema því sem munar að allt fari í bál og brand.

Og gerist það, er það bara ríkisstjórninni sjálfri að kenna.

Er hún ekki mjög vel gefin, þessi ríkisstjórn?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?