Ég setti hér inn í morgun pistil um hugleiðingar 9 ára sonar míns um hvort það myndi koma ríkinu að gagni í kreppunni ef hann legði fram þær 20 þúsund krónur sem hann hefur verið að safna fyrir Playstation 3 tölvu.
Allt í einu datt mér í hug hvort fólk kynni kannski að taka þennan pistil sem sæta og upplífgandi litla anekdótu um hjálpsemi lítils stráks.
Þetta er alls ekki svoleiðis saga.
Þetta er í rauninni skelfileg saga um hvernig kreppan er að naga sálina í börnunum okkar.
Rétt eins og börn alkóhólista læra að ástandið á heimilinu sé þeim að kenna og það standi upp á þau að laga það, þá er heil kynslóð af börnum að læra það þessar vikurnar að þessi dularfulla kreppa, sem þau skilja ekkert í, sé á einhvern hátt þeim að kenna.
Og það standi upp á þau að bæta úr, með því jafnvel að fórna öllu sínu.
Ef stjórnvöld í landinu gera ekki sitt til að hreinsa andrúmsloftið, svo foreldrar geti talað við börnin sín um allt þetta bölsýnis fréttaflóð af einhverju skynsamlegu viti, þá mun þessi lærdómur festast endanlega í huga barnanna okkar.
Blogg
ÞAÐ SEM BÖRNIN ERU AÐ LÆRA
12:07 › 11. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
