Eina góða og þarfa ábendingu hef ég fengið um að ég ætti að skrifa ögn meira um fegurð tilverunnar hér á Trésmiðjuna.
Ekki bara níð og nagg um Geir Haarde og félaga.
Þetta er ugglaust satt og rétt, og sem betur fer er tilveran nógu fögur til að um það megi yfirleitt hafa mörg orð.
En þegar maður les í morgunsárið fréttir annars vegar um að Seðlabanki Íslands hafi líklega "gleymt" að senda IMF beiðnina um aðstoð sem við héldum að hefði farið fyrir meira en viku ...
... og hins vegar að jafnvel okkar norrænu vinir treysti sér varla eða ekki til að veita okkur lán eða aðstoð af því svo illa hafi verið staðið að upplýsingagjöf héðan ... ja, þá er það ekki fegurð himinsins sem verður manni efst í huga.
Heldur rammasta reiði.
Hvaða klúðrarar eru hér við svokallaða stjórn?
Eigum við þetta virkilega skilið?
Fer ekki að verða tími til að mótmæla oftar en bara á laugardögum?
Fer ekki að koma tími á Nóvemberbyltinguna?
Blogg
RAMMASTA REIÐI
09:23 › 11. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
