Æðsta ósk 9 ára sonar míns er að eignast Playstation 3 til að geta spilað á hana nýjasta fótboltaleikinn.
Foreldrarnir ákváðu að reyna að kenna honum hvað hlutirnir kosta og sögðu honum að tölvuna fengi hann ekki nema hann safnaði sér fyrir henni sjálfur.
Hann er greinilega ekki mikill peningasafnari í eðli sínu en hefur þó tekist á ansi mörgum mánuðum að öngla saman 20 þúsund krónum inn á bók í banka.
Hann veit ósköp vel að þetta er bara hluti þess sem tölvan kostar, svo hann örvæntir stundum um að þetta muni takast.
En þessi 20 þúsund kall er þó leið hans að lífshamingjunni, sem hann er nokkuð viss um að muni hellast yfir hann þegar hann eignast Playstation 3.
Í gær vorum við að ferðast í bíl um kvöldmatarleytið og útvarpið var að flytja sinn vanalega skammt af kreppufréttum.
Pilturinn hefur hingað til ekki mikið kippt sér upp við krepputal, enda hef ég brýnt fyrir honum að þetta muni líða hjá.
En í þetta sinn varð hann hugsi.
Og sagði svo upp úr eins manns hljóði eftir þó nokkra stund:
"Mundi það hjálpa ríkinu eitthvað ef það eignaðist 20 þúsund kall?"
Blogg
MYNDI 20 ÞÚSUND KALL HJÁLPA?
07:42 › 11. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
