ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

LÆRDÓMUR AF BROTTHVARFI BJARNA

20:35 › 11. nóvember 2008


Valgerður Sverrisdóttir segir að það hafi verið rétt af Bjarna Harðarsyni að segja af sér þingmennsku.

Gott og vel.

Þá vitum við hvaða standard Valgerður miðar við.

Ef þingmaður styðst (eða réttara sagt lýsir vilja til að styðjast) við nafnlaust tölvupóstfang til að dreifa bréfi sem kemur pólitískum andstæðingi illa (þótt í sama flokki sé), þá á hann að segja af sér.

(Alveg burtséð frá því hvað í bréfinu stendur.)

Varla trúum við því að það alvarlegasta í þessu máli hafi verið að Bjarni og Valgerður voru í sama flokki?!

Nei, það verður gaman að sjá herferðina sem Valgerður mun nú vafalítið hefja á Alþingi til að fylgja því eftir að allir þingmenn sekir um þetta - eða annað sambærilegt eða þaðan af meira - segi undireins af sér.

Skyldi til dæmis vera afsagnarsök að hafa staðið óheiðarlega að "sölu" íslensku ríkisbankanna til pólitískra vildarvina?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?