ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

FRUMSTÆÐ SÝN GEIRS HAARDE Á LÝÐRÆÐIÐ

19:38 › 11. nóvember 2008


Ansi voru merkileg viðbrögð þeirra Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur og Geirs Haarde þegar þau voru spurð í morgun um þau orð Gylfa Arnbjörnssonar hjá ASÍ að Árni Mathiesen fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra ættu að segja af sér.

Ingibjörg Sólrún þvertók fyrir að Björgvin ætti að segja af sér. Síðan færði hún rök fyrir máli sínu. Helst þau að Björgvin hefði ekki vitað af alvarleika Icesave-málsins.

Maður getur verið sammála Ingibjörgu Sólrúnu eða maður getur verið ósammála henni. En þetta var alla vega málefnalegt mál.

Geir Haarde fór aftur á móti að kvarta og kveina yfir því að Gylfi skyldi leyfa sér að hafa skoðun á því hverjir sitja í ríkisstjórn Íslands.

Hann sagði beinlínis að það kæmi Gylfa ekki við!!!

Því ekki skipti hann sér af því hverjir ynnu verkin fyrir ASÍ.

Þetta svar sýnir ljóslega og í hnotskurn hve Geir Hilmar Haarde hefur skelfilega frumstæða sýn á lýðræðislega stjórnarhætti.

Auðvitað kemur það ASÍ við hverjir sitja í ríkisstjórn Íslands. Það kemur mér við hverjir sitja í ríkisstjórn Íslands. Það kemur öllum við og allir mega lýsa skoðunum sínum á því.

Ég ítreka enn, Geir sagði beinlínis: "Það kemur þeim ekki við ..."

Ég held að Geir og gamla þreytta menntaskólaklíkan hans ættu að gefa þjóðinni frí frá svona hugsunarhætti.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?