Nokkur atriði eru augljós:
1. Allar tilraunir til að halda í íslenska krónuhræið eru dæmdar til að mistakast.
2. Allar tilraunir til að koma tímabundnu lífi í íslenska krónuhræið eru dæmdar til að mistakast. Og þá meina ég misheppnast illa. Mjög illa.
3. Allar tilraunir til að taka upp aðra mynt en evru eru dæmdar til að mistakast. Þetta vita allir, líka VG. Með því að tala um norsku krónuna er bara verið að drepa málum á dreif. Og við megum engan tíma missa.
4. Allar tilraunir til taka upp evru einhliða eru dæmdar til að mistakast.
5. Það er á hinn bóginn ljóst að aðildarumsókn og upptaka evru við okkar skelfilegu aðstæður þarf ekki að taka mjög langan tíma. Það mun ekki koma í veg fyrir erfiðleka næstu 3-4 mánaða og kannski eitthvað rúmlega það, en gæti samt ótrúlega fljótt farið að lina þjáningar okkar.
Hvað er þess vegna að því að sækja um aðild að ESB og það STRAX Í DAG?
Það er ekki fyrr en í aðildarumræðum sem kemur í ljós hvað aðildin mun kosta okkur. Við getum blaðrað okkur hás um skilmála og skilyrði en það kemur ekki í ljós fyrr en í aðildarviðræðum. Svo einfalt er það.
Við getum ekki tapað á því að sækja um strax. Af hverju eyða meiri tíma?
Aðild mun hjálpa okkur upp úr öldudalnum, og ef aðildin reynist síðan ekki hagstæð þegar allt er komið á réttan kjöl, þá göngum við bara úr sambandinu aftur.
Það er nefnilega hægt.
Þótt það hafi engir kosið að gera, nema Grænlendingar.
Blogg
ÞVÍ EKKI AÐ SÆKJA UM STRAX Í DAG?!
07:56 › 10. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
