Í athugasemd við næstu bloggfærslu hér á undan vakti Haraldur nokkur athygli á því að Spaugstofunni hefði ekki verið nógsamlega hrósað fyrir þætti sína að undanförnu.
Þetta er alveg rétt hjá Haraldi.
Nú í mörg herrans ár hefur Spaugstofan verið svona frekar lítils metin hjá "smarta settinu" í þjóðfélaginu.
Þeir félagar hafa jafnvel þótt lummó og gamaldags með sitt fréttatengda grín.
Bæði ég og alþýðan hafa að vísu alltaf fílað Spaugstofuna best, en í sumum kreðsum hefur hún ekki þótt fín.
"Nýja grínið" átti að hafa sér til ágætis að snerta aldrei á ömurlega leiðinlegum viðfangsefnum eins og pólitík og svoleiðis pípi. Fóstbræður, Svínasúpur, ég man ekki hvað allt þetta heitir.
Það snerist um að sýna hvað venjulegt fólk er asnalegt, ekki hvað stjórnmálamenn eru asnalegir.
Þetta "nýja grín" á sér ágæta fulltrúa í "Ríkinu" sem líklega er enn verið að sýna á Stöð 2.
Algjörlega ófyndnir sketsar og í ástandi eins og nú, bara eins og eitthvert óskiljanlegt rugl frá annarri plánetu.
En Spaugstofan blómstrar í kreppunni.
Eins og líka hefur verið bent á í athugasemdum hér á Trésmiðjunni, þá hefðu margir viljað fá að kýla kalda útrásarvíkinga, stjórnmálamenn og Seðlabankastjóra á boxæfingu eins og Spaugstofan bauð upp á í síðasta þætti.
Spaugstofan er framarlega í hópi þeirra sem halda lífinu í okkur í kreppubömmernum öllum, og takk fyrir það!
Blogg
SPAUGSTOFAN BLÓMSTRAR Í KREPPUNNI
21:19 › 10. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
