ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

VAR ÚTRÁSIN LISTAVERK?

12:17 › 1. nóvember 2008

Ég hitti Sigurð Pálsson ljóðskáld og leikritahöfund úti í búð í fyrradag.
Þjóðleikhúsið er nýbúið að frumsýna leikrit eftir hann, sem ég hlakka til að sjá. Það hefur fengið aldeilis fína dóma, þótt örlað hafi á spurningum um hvort áhorfendur skilji endilega allt sem fram fer á sviðinu.

Það er athugasemd sem Siguður hefur heyrt áður.

En lætur sér standa á sama um. Því hann leggur meira upp úr að menn skynji en skilji.

Við fórum einmitt að tala um þetta í búðinni, og Sigurður kom þá með ágæta athugasemd sem ég vona að hann fyrirgefi þó ég hafi hér eftir honum.

Hann ítrekaði að listaverk ættu menn að skynja, fremur en skilja.

Ólíkt til dæmis bissniss.

Það væri nauðsynlegt að skilja bissniss, ekki nóg að skynja hann.

Því hefðum við gert grundvallarmistök meðan útrásin stóð sem hæst.

Fæst okkar hefðu skilið í raun og veru á hverju þetta allt saman var byggt.

En í stað þess að krefjast þess að skilja fyrirbærið, hefðum við látið okkur nægja að skynja það. Rétt eins og um listaverk væri að ræða.

Og útrásarvíkingarnir sjálfir hefðu sumir verið farnir að skynja sjálfa sig sem listamenn sem sköpuðu eitthvað úr engu.

En í útrásinni gekk því miður ekki til lengdar að skynja bara hlutina.

Ólíkt raunverulegu listaverki - eins og leikritinu hans Sigurðar.

Þetta var býsna skarplega athugað hjá skáldinu, fannst mér.

En ég hef heldur aldrei þolað orðið "athafnaskáld".






ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?