ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 5m/s S
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

ÓSKILJANLEGT ...

16:14 › 1. nóvember 2008

... af hverju ekki er búið að mynda sannfærandi samtök almennings til að bregðast við "ástandinu".
Af hverju í ósköpunum lætur fólk yfir sig ganga að Seðlabankastjóri sitji áfram þó allir viti að hann hefur staðið sig mjög illa, gert illa verra og sé - ásamt öðrum sem stýrðu peningamálastefnu undanfarinna ára - kallaður "fífl" í útlöndum?

Af hverju lætur fólk líðast að fá engar alvöru upplýsingar um það sem er að gerast í samskiptum Íslands við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn?

Eða aðra hugsanlega lánveitendur?

Af hverju fáum við ekki að vita hvað er að gerast í hinum nýju bönkum sem við teljumst þó eiga núorðið?

Af hverju eru ekki mynduð samtök sem krefjast aðildar að ákvörðunum stjórnvalda, og þó umfram upplýsinga?

Það er gamaldags og úrelt og svívirða við almenning í þessu landi að halda eigi öllum ákvörðunum innan ramma stjórnmálaflokkanna.

Eins og þeir hafi nú staðið sig vel að undanförnu!

Af hverju fáum við ekki að vita hvað er verið að gera til að undirbúa rannsókn á hruninu? Hvaða erlenda sérfræðinga er verið að tala við um að leiða slíka rannsókn?

Af hverju er ekki verið að tala við Evrópusambandið um tafarlausar aðildarviðræður? Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að við eigum að ganga í ESB, nánast hvað sem það kostar, en alla vega er ljóst að við þurfum sem allra fyrst að fá að vita hvort við viljum aðild eða ekki.

Svo við getum samþykkt aðild eða hafnað henni, ef hún hentar okkur ekki.

En ekki eyða dýrmætum tíma í röfl fram og til baka mánuðum saman um hugsanlega kosti og galla aðildar.

Best að fá það upp á borðið strax.

Af hverju eru ekki mynduð samtök almennings sem gætu krafist þess arna af stjórnvöldum í landinu?

Svo þau komist ekki upp með að hunsa líðan almennings endalaust.

Eftir jarðskjálftana á Suðurlandi var sett upp miðstöð á Selfossi þangað sem fólk gat leitað til að fá upplýsingar og bara til að tjá sig.

Af hverju er það ekki gert í þessu tilfelli?

Er það af því stjórnvöld í landinu vilja ekki veita upplýsingar?

En þá eiga samtök almennings að krefjast þess.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?