Má til með að birta þessa mynd, ekki síst af því ég er að æfa mig að setja inn mynd á Trésmiðjuna!
Þetta er ný mynd frá Hubble stjörnusjónaukanum, og sýnir árekstur tveggja stjörnuþoka sem átti sér stað fyrir 400 milljón árum.
Það var um það leyti sem fyrstu lífverurnar voru að skríða upp úr sjónum á Jörðinni og nema land.
Stjörnuþokan til vinstri er nýbúin að ryðjast á fullri ferð gegnum stjörnuþokuna til hægri. Þess vegna er gat í gegnum þá síðarnefndu.
Í þeirri stjörnuþoku hafa allar stjörnur tæst í sundur, en nýjar eru farnar að myndast í hringlaga glóandi rykmekkinum sem eftir er.
Í báðum stjörnuþokum eru milljónir og aftur milljónir af sólum og vafalaust reikistjörnum, og fjöldinn er svo mikill að það má ganga út frá því sem vísu að viti borin "menning" hafi verið á fleiri en einni og fleiri en tveimur plánetum í stjörnuþokunum tveim.
Það hefur eflaust allt þurrkast út við áreksturinn, sér í lagi þeirri til hægri. Myndin sýnir því fjörbrot óteljandi óþekktra lífvera og menningarheima.
Allt gjörsamlega gufað upp úr sögunni og við munum aldrei frétta af því hvers konar líf þreifst þarna.
Eða hvaða hugsun, hvaða speki, hvaða grimmd og hvaða fegurð.
Allt horfið. Að eilífu.
En endurbygging þegar hafin!
Blogg
HORFIÐ LÍF, HORFIN FEGURÐ
11:22 › 1. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
