Hvað á það að þýða hjá samtökunum Nýjum tímum að nota þennan fána?
Samtökin breyttu fyrsta merki sínu eftir að bent var á fasísk element í þessum samtvinnuðu hnefum, en þessi nýja útgáfa er ekki mikið skárri.
Íslenski fáninn gerir eiginlega illt verra.
Þjóðernissinnaflokkur Íslands á fjórða áratugnum hefði með mestu ánægju marserað undir þessu flaggi.
Er allt heila málið kannski bara brandari hjá sumum þeim myndlistarmönnum sem koma nálægt samtökunum?
Listaverk - eins og útrásin?
Alla vega er þetta í senn óskemmtilegt og ljótt.
Út í hafsauga með þessa dulu, ef þið viljið láta taka ykkur alvarlega!
Blogg
FJANDINN HAFI ÞENNAN FÁNA
13:22 › 1. nóvember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
