Við höfum nú upplifað mesta efnahagshrun lýðveldisins. Og það er 99.9% öruggt að hjá því hefði mátt komast ef við hefðum haft evru, en ekki okkar handónýta krónuræfil.
Samt finnst manni það enn vera töluvert „hugrekki“ hjá Þogerði Katrínu Gunnarsdóttur að lýsa í Viðskiptablaðinu mjög verulegum efasemdum um að krónunni sé viðbjargandi.
Sem er auðvitað í sjálfu sér fáránlegt. Auðvitað á varaformaður í stórum stjórnmálaflokki að ræða hispurslaust um þá möguleika sem við eigum í stöðunni.
Af þeim er evran vænlegasti möguleikinn, það vitum við líka öll.
Og því ætti ekki að þurfa „hugrekki“ til.
En samt, svona hefur nú ástandið samt verið í Sjálfstæðisflokknum. Og því er full ástæða til að mæra „hugrekki“ Þorgerðar Katrínar. Það er vonandi að við þurfum ekki að bíða mánuðum saman eftir lífsnauðsynlegri umræðu meðan fleiri sjálfstæðismenn manna sig upp.
Blogg
HUGREKKI ÞORGERÐAR KATRÍNAR
11:34 › 31. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
