ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 3m/s SSW
Trésmiðja

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

HEGÐUN BÍLA Í KREPPUNNI

16:27 › 31. október 2008

Skemmtilegt að sjá hvernig hegðun ekki aðeins mannfólksins hefur breyst í kreppunni, heldur líka bílanna. Einkum þeirra í dýrari kantinum.

Stóru amerísku pallbílarnir eru eiginlega gjörsamlega gufaðir upp af götunum. Hvað skyldi hafa orðið af þeim?

Benzar og BMW-ar sem áður fóru um stræti eins og stórhættuleg urrandi tígrisdýr laumast nú um eins og meinlausir kettlingar.

Mest breyting hefur samt orðið á hegðun Range Rovera. Það eru ekki margar vikur síðan þeir hegðuðu sér á götunum eins og þeir beinlínis ættu pleisið. Þeir voru ekki beint með dónaskap, heldur áttu þeir bara svo erfitt með að taka eftir öðrum í kringum sig.

Nú læðast þeir um sakbitnir og reyna að láta sem minnst fyrir sér fara. Eins og hrunið sé allt þeim að kenna.

Við sem höfum vit á að vera á Volvo höldum svo náttúrlega bara okkar striki.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?