Ég hef verið að horfa undanfarið á bresku sjónvarpsþættina The Street sem voru sýndir í sjónvarpinu fyrir einhverju síðan, en ég missti þá af.
Þetta eru að mestu sjálfstæðir þættir sem segja frá lífi alþýðufólks við götu eina einhvers staðar á Manchester-svæðinu, held ég.
Þættirnir eru hörkufínir, sterkir og nöturlegir í senn, en mannlífið þarna er ekki beint uppbyggilegt eða gleðiríkt.
Ykkur að segja, ef eitthvað er að marka þessa þætti þá eru Bretar upp til hópa rakið skítahyski og óalandi dusilmenni.
Og þar sem þetta er áreiðanlega það sama fólk og lagði peningana sína inn á Icesave-reikningana, þá hugsaði ég í kvikindisskap mínum eftir fjórða þáttinn:
"Djöfull sem er gott að við skulum haft rænt þetta pakk öllum lífeyrissparnaðinum!"
- - -
Vonandi er svo óþarft að taka fram að vitaskuld var mér ekki djúp alvara ...
Blogg
GOTT Á HELVÍTIS BRETANA!
12:33 › 31. október 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
