-
HINSTA KVEÐJA
30. nóvember 2009
Rétt í þessu var mér greint frá því að ekki væri frekar óskað eftir starfskröftum mínum hjá fyrirtækinu Birtíngi, sem gefur út Söguna alla og SKAKKA TURNINN.
Þar eð dv.is - þar sem ég hef haldið úti Trésmiðjunni nú í 13 mánuði - er einnig rekið af Birtíngi, þá þykir mér einsýnt að vart sé óskað eftir frekara bloggi af minni hálfu á þessum vettvangi.
Og þakka lesendum Trésmiðjunnar kærlega samfylgdina.
Illugi JökulssonSkrifa athugasemd
-
AFGREIÐUM NÚ ICESAVE!
30. nóvember 2009
Ég get borið fulla virðingu fyrir þeim sem eru á móti Icesave-samningnum.
En ég held að þrennt sé þó alveg morgunljóst.
Í fyrsta lagi að hvernig svo sem upphafleg réttarstaða Íslands kann að hafa verið, þá skuldbatt ríkisstjórn Geirs Haarde okkur í málinu.
Í öðru lagi að hér og nú sé ekki hægt að ná betri samningi en þeim sem nú liggur fyrir. Og það sé stórkostlega áhættusamt að þráast við að reyna það.
Sömuleiðis, að þó ég viti nú ekki ýkja margt um alþjóðastjórnmál og samningatækni, þá sýnist mér nokkuð augljóst að þegar um hægist og kreppunni á Vesturlöndum linnir, þá verði mun auðveldara að taka upp aftur í ró og næði þau atriði samningsins sem kunna að reynast okkur erfiðust.
Í þriðja og síðasta lagi, þá virðist mér málþóf Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á Alþingi kjánalegt og niðurlægjandi fyrir Alþingi. Það er gott og blessað að ræða mál í þaula, en það er löngu búið að ræða allar hliðar á þessu máli.
Kominn tími til að afgreiða það.Skrifa athugasemd
-
MAÐURINN OG HATTURINN
30. nóvember 2009
Þetta hér er fín grein hjá Teiti Atlasyni.
Það er alveg hversu ófullkomin núverandi ríkisstjórn kann að vera, það er alveg sama hvaða ytri orsakir má finna sem áttu þátt í hruninu, það er alveg sama hve mikið klúður okkur kann að virðast Icesave-niðurstaðan, það má þó aldrei gleymast hvar hin raunverulega sök liggur.
Hjá Sjálfstæðisflokknum.
Og hvergi annars staðar.
Og meðan ekki verður vart neinnar iðrunar úr þeirri átt, né heiðarlegs uppgjörs við fortíðina, þá er það í sjálfu sér verðugt markmið að halda flokknum, og útseli hans Framsóknarflokknum, frá völdum.
Og beina sífellt kastljósi að honum, svo honum takist ekki að fela sig í skuggunum eða þurrka sjálfan sig út af ljósmyndum af hruninu.
Í því tilfelli sem Teitur nefnir var maðurinn náttúrlega ekki þurrkaður út sjálfviljugur, af sjálfum sér og vinum sínum, eins og raunin er um Kjartan Gunnarsson og félaga, heldur voru óvinir hans að verki.
Sagan sem Teitur segir virðist nefnilega dregin af örlögum Vladimírs Clementis, sem Milan Kundera sagði í Bók hláturs og gleymsku.
Clementis var einn af forsvaramönnum kommúnista í Tékkóslóvakíu á árunum fyrir seinni heimsstyrjöld og meðan á henni stóð. Eftir stríðið var hann einn helsti forsprakki valdaráns kommúnista með stuðningi Stalíns árið 1948. Þá varð Klement Gottwald forseti.
Svona leit Clementis út, hattlaus.
Clementis var um tíma utanríkisráðherra en síðan varð hann undir í valdabaráttu innan kommúnistaflokksins Tékkóslóvakíu. Það sama gerðist, fyrr eða síðar, í flestum kommúnistaríkjunum. Clementis var sakaður um "borgaralega þjóðernisstefnu" og þátttöku í samsæri Trotskíista, zíonista og Títóista!
Hann var hengdur 1952 og flestallar heimildir um hann voru síðan þurrkaðar út. Myndin fræga sýnir hann fylgjast með Gottwald, sigurvegara valdabaráttunnar, flytja ræðu.
Þetta er myndin:
Skrifa athugasemd
-
AUGLYSENDUR: STYRKIÐ FJÖLMIÐLA, EKKI RUSLATUNNUR!
29. nóvember 2009
Í fyrradag heyrði ég viðtal í útvarpinu við einhvern forráðamann prentsmiðjunnar Odda.
Hann taldi það til marks um að ekki væri alveg sama svartsýnin uppi í þjóðfélaginu að mjög hefði aukist prentun á alls konar auglýsingabæklingum hjá þeim.
Þessum sem bornir eru í hús fyrir jólin og kallast oftast bara ruslpóstur.
Prentun á þessum ruslpósti gjörsamlega hrundi fyrir jólin 2008.
En eins og menn hafa tekið eftir hefur heilmikið hækkað í ruslpóstshlaðanum nú.
Í sjálfu sér er það auðvitað rétt hjá Oddamanninum að þetta sýnir að svolítið aukið líf er að færast í þjóðfélagið. Og að fólk hefur þrátt fyrir allt eitthvað handa á milli sem kaupmenn sækjast eftir að krækja í með þessum bæklingum.
En mikið óendanlega fara þessir bæklingar samt í taugarnar á mér.
Að parti til stafar andúð mín á þeim af hreinum fagurfræðilegum ástæðum ástæðum.
Þeir eru svo dæmalaust ljótir, flestallir!
Þetta sé ég þegar ég safna þeim saman og fer með þá út í tunnu.
En ég viðurkenni líka að að öðrum parti er um að ræða eintóma eiginhagsmunagæslu.
Þar sem ég stýri tímaritum sem myndu í þessu árferði svo sannarlega þiggja eitthvað af þeim auglýsingum sem liggja fyrir fótum manns þegar maður klofar yfir bæklingana í anddyrinu eftir heimssókn póstsins.
Ég skil bara ekki auglýsendur sem eyða kynningarfé sínu í þessa pésa, sem ekki einu sinni börnin á mínu heimili skoða, í stað þess að nota þá í alvöru fjölmiðla sem einhver horfir á eða hlustar á eða les.
Þannig held ég að auglýsendur gætu lagt sitt af mörkum til að fleyta lífsnauðsynlegri fjölmiðlun yfir hinn dýpsta dal kreppunnar.
Auglýsendur ættu að styrkja fjölmiðlana fremur en ruslatunnurnar.Skrifa athugasemd
-
SJÓMANNAAFSLÁTTUR ER ÓRÉTTLÁTUR
28. nóvember 2009
Ég var einu sinni sjómaður.
Þrjú sumur meðan ég var í menntaskóla var ég á sjó.
Mér líkaði það svo vel að upp frá því hef ég eiginlega litið svo á að ég hafi síðan bara verið í tímabundinni landlegu!
Og alltaf þegar ég sé í fréttunum skip velkjast í fjallháum öldum í ofsaveðri, þá fæ ég fiðring í magann og langar um borð.
Þó var ég bara messagutti og síðan viðvaningur á varðskipum, en svoleiðis líta alvöru sjómenn náttúrlega ekki á sem alvöru sjómennsku. Heldur bara eitthvað dútl.
Þessi formáli er bara til að sýna að ég ber takmarkalitla virðingu fyrir sjómönnum, og finnst þeir alls góðs maklegir.
En þó finnst mér ekki að þeir eigi að njóta sérstakra kjara við skattheimtu.
Ég bara kem ekki auga á réttlætið í því, og hef aldrei gert.
Sumir þeirra eru á góðum launum, aðrir bera minna úr býtum, eins og gengur, en ég skil ekki hugsunina bak við að hver einasti maður í þessari stétt fái sérstakan skattaafslátt frá samfélaginu, sem aðrir fá ekki.
Og gegna þó margir fleiri erfiðum störfum í þessu samfélagi.
Enda vitum við að það var engin háleit hugmyndafræði bak við sjómannaafsláttinn.
Honum var komið á sem reddingu einhvern tíma í kjarabaráttu þegar útgerðarmenn treystu sér ekki til að borga sjómönnum hærra kaup og vældu út úr ríkinu að það veitti sjómönnum þessa kjarabót í staðinn.
Svo þeir losnuðu við að borga hærri laun.
En í reynd er sjómannaafslátturinn óréttlátur gagnvart öllum þeim sem ekki njóta hans.
Ég held því að sjómenn ættu ekki að kvarta mjög sárt.
Sjómannaafslátturinn er líka afnumin á mjög löngum tíma, furðulega löngum miðað við hversu snögglega kjör eru skert hjá ýmsum öðrum.Skrifa athugasemd
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- Næsta »

















