Sarah Jessica var í algeru uppáhaldi hjá mér. Algerlega drop dead. Chanel kjóllinn mjög hún, sem og stóri hársnúðurinn. (í netheimum var eitthvað slúðrað um andlitslyftingu, hún lítur allavega svakalega vel út)

Á pallinum...
Carey Mulligan í uppáhaldskjólnum mínum nr. 2. Ljósmynd segir ekki nóg. Ef litið er nær sést að kjóllinn er m.a skreyttur með litlum skærum. Mia Farrow klippingin er æði, mætti vera minna "greidd". Dáldill hjálmur í gangi.
Hvað er í vatninu þínu, ungfrú Streep? Mest sjarmerandi leikkona sögunnar, enda engin tilnefnd jafn oft til Óskars. Æðislegur kjóll sem hæfir henni vel.
Aftur segir ljósmynd ekki nóg, þessi kjóll á Cam er STUNNING.
Hann er frá Elie Saab, ég hafði tekið eftir honum sérstaklega þegar ég sá hann á pallinum, elska hann með loðinu. GORDJÚSS!

Sandra Bullock í gullfallegum kjól, virkar svolítið hvít á mynd en er gullfalleg "in real life"
Finnst öxlin flottari á upprunalegu útgáfunni samt.
ÆÐISLEGUR kjóll (sérstaklega að ofan) á Zoe úr Avatar. Klaufin er að skemma þetta fyrir mér samt.
Rachel McAdams í Marchesa kjól...
Og fyrirsætan Karlie Kloss í honum á tískusýningarpallinum.
Kjóll sem vakti frekar athygli á barmi en öðru...
ahhh eyrnalokkarnir...
Amanda í fallegum kjól sem reyndar gerir ekkert fyrir fallegan barm hennar.
Virkilega að digga þennan kjól á Nicole Richie. (Veit reyndar ekkert hvað hún var að gera þarna)
Uppáhalds leikkonan mín, Vera Farmiga. Liturinn virkilega fallegur við húðlitinn hennar, er reyndar lítið fyrir svona rjómakökukjóla, en held svo upp á hana að hún kemst alveg upp með þetta.
Maggie er alltaf töff típa, elska bleika varalitinn við bláa kjólinn.
Fyrrum fyrirsætan Diane Kruger úr Inglorious Basterds í Chanel.
Finnst eins og ég hafi séð hana milljón sinnum í sama kjólnum.

J-Lo er svo sæt. Kjóllinn er flottur. Veit samt ekki hvort þessi silla á hliðinni geri henni einhverja greiða.
Karlie Kloss aftur...
Demi, lookin´22 !
Sú á flottan lækni :-) Elska þennan lit. Aftur, dálítið mikið um sillur, blúndur og pífur.
Tina Fey-bara æði. Michael Kors kjóll.
Eins og ég elska Penelope og fannst hún flottust á síðustu hátíð, eru svona kjólar ekki að gera sig fyrir mér. Þetta efni og svona mikið af því finnst mér mjög óklæðilegt og cheap!
Kate Winslet gæti gert svo MIKIÐ betur. Lítur frábærlega út samt sem áður. Kjóllinn er flopp.
Zoe Kravitz sæt með pabba sín
Anna Kendrick úr Up In The Air í glæsilegum kjól sem lýsir litatónum kvöldsins vel.
Hún á geðveikan díalóg í þeirri mynd.
Blogg
TÍSKUSLYS OG SIGRAR Á ÓSKARNUM!
01:22 › 8. mars 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
