ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.8° 7m/s WSW
Tískuheimur Helgu

Tískuheimur Helgu

Helga Kristjáns hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar frá blautu barnsbeini. Blaðamaður, stílisti og Make-Up Artist sem er gangandi alfræðirit um allt sem snýr að tískunni. Helgakay@gmail.com

OFURFYRIRSÆTA BERST GEGN LIMLESTINGU Á KYNFÆRUM KVENNA !

22:42 › 15. mars 2010

Sómalska ofurfyrirsætan og talsmaður réttinda kvenna, Waris Dirie, hefur átt einstaka ævi. Bækurnar um líf hennar hafa selst eins og heitar lummur úti um allan heim og í leiðinni hefur henni tekist að vekja athygli á þeim viðbjóði sem limlestingar á kynfærum kvenna er , sem viðgangast meðal annars í heimalandi hennar.
Þau ykkar sem ekki hafa lesið bækurnar Desert Flower og Desert Down, út í búð eða bókasafn með ykkur !
Nú er að koma út mynd sem byggð er á lífi Waris og í aðalhlutverkinu er engin önnur en ein af uppáhalds fyrirsætunum mínum, Liya Kebede. Hér neðst set ég trailerinn á myndinni, en Liya virðist fara með leiksigur í henni, sérstaklega ef tillit er tekið til þess að þetta er frumraun hennar á hvíta tjaldinu. Hér eru líka nokkrar vel valdar myndir af þessum einstöku konum !


fyrir Chanel

Og Loréal


Liya Kebede sem Waris Dirie í Eyðimerkurblóminu.

Á forsíðu Vogue (finnst þessi ÆÐI)






Liya og Natalia V með fyrstu börnunum sínum







ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.