ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 3.7° 7m/s WSW
Tískuheimur Helgu

Tískuheimur Helgu

Helga Kristjáns hefur lifað og hrærst í heimi tískunnar frá blautu barnsbeini. Blaðamaður, stílisti og Make-Up Artist sem er gangandi alfræðirit um allt sem snýr að tískunni. Helgakay@gmail.com

CHANEL FLYTUR INN SKANDINAVÍSKA ÍSJAKA FYRIR TÍSKUSÝNINGU

01:12 › 10. mars 2010

Kaiser Karl lét flytja inn ísjaka einhvers staðar frá Skandinavíu fyrir nýjustu sýninguna sína.
Ég held að Karl-inn sé eitthvað farinn að missa glóruna. Hver fyrirsætan eftir annarri gekk í kringum ísjakana í gervi ísbjarnaloðfeldi, frá toppi til táar. BÓKSTAFLEGA.
Hreinasti viðbjóður.
Ég sá nokkra kjóla þegar leið á sjóið sem voru virkilega fallegir, en í heildina er þessi lína hreinasta og argasta drasl !
Eiginlega bara spaug.
Á jákvæðari nótum voru fylgihlutirnir aftur á móti TFD (To die for)
Geðveik sólgleraugu, risavaxnir hringar og annað handskart og litlar töskur sem líta út eins og ísmolar.
Guðdómlegar !
Skótauið var að mestu loðmúnbúts eða canklebúts (þegar calves og ankles verða að einu) , þið náið þessu. Sum sé, ekkert sérlega klæðilegt og eiginlega martröð hverrar konu.
Vonandi verður hrekkjavakan búin hjá Karli fyrir næsta sjó, því í þessum skrípaleik á meistarinn ekki heima.


Sexí ísbjarnafolar?


Einmitt ! Bætum á okkur tuttugu kílóum í kringum rass og læri. Fínasta hugmynd, Karl.

Já, nei takk !

Þessi kjóll var að mínu mati það sem stóð uppúr, fyrir utan fylgihlutina.

Cankleboots !

Trainwreck make-up. Svosem allt í góðu með það !

Ágætis kynlífshnakki !

Sjúk sólgleraugu !


Líður varla á löngu þangað til Lady Gaga sést sporta þessum !



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.