Það var gott hjá Alþingi að fækka ráðuneytum í átta. Ég hef árum saman mælt fyrir fækkun ráðuneyta, og það hafa margir aðrir gert, og nú er málið loksins í höfn.
Hitt finnst mér lakara, að nöfn fjögurra af hinum nýju ráðuneytum eru óþarflega löng og stirð frá mínum bæjardyrum séð.
Hér er tillaga að styttingu.
Forsætisráðuneytið er í lagi
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið ætti heldur að heita Atvinnuvegaráðuneytið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið ætti að heita Fjármálaráðuneytið
Innanríkisráðuneytið er í lagi
Mennta- og menningarmálaráðuneytið ætti að heita Menntmálaráðuneytið
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið ætti að heita Umhverfisráðuneytið
Utanríkisráðuneytið er í lagi
Velferðarráðuneytið er í lagi
