Það vekur athygli mína, hversu margir sjálfstæðismenn stíga fram undir nafni til að lýsa þeirri skoðun, að þeim finnist eðlilegt, að Alþingi hverfi hvort heldur fyrir handvömm eða hugvömm frá þjóðaratkvæðagreiðslu, sem þjóðinni hefur verið lofað.
Varðar þessa sjálfstæðismenn ekkert um þjóðfundinn, sem kallaður var saman að frumkvæði Alþingis til að leggja drög að nýrri stjórnarskrá?
Varðar þá ekkert um starf stjórnlaganefndar, sem var skipuð sjö fulltrúum Alþingis og skilaði prýðilegri 700 blaðsíðna skýrslu í hendur Stjórnlagaráðs?
Varðar þá ekkert um lýðræðislega kjörið stjórnlagaþing?
Halda þeir, að þeir geti endalaust skýlt sér bak við fráleita ógildingu Hæstaréttar á kosningunni til stjórnlagaþings? -- eina þjóðkjörið, sem hefur nokkru sinni verið ógilt í lýðræðisríki, þótt slíkt gerist stöku sinnum í þriðjaheimslöndum, nú síðast í Egyptalandi.
Andstæðingar frumvarps Stjórnlagaráðs þora ekki að fjalla um efnisatriði, heldur reyna þeir að þyrla upp ryki í kringum ótilgreinda "hnökra", sem þeim hefur þó ekki enzt heilt ár til að finna.
Þeir þora ekki að tala um auðlindaákvæðið, af því að þeir vita, að meiri hluti þjóðarinnar vill auðlindir í þjóðareigu.
Þeir þora fæstir að tala um kosningaákvæðið, af því að þeir vita, að meiri hluti þjóðarinnar vill jafnt vægi atkvæða.
Þeir þora ekki að tala um frjálsan aðgang að upplýsingum, af því að þeir vita, að fólkið í landinu vill svipta leyndarhjúpnum af t.d. eftirlaunagreiðslum til stjórnmálamanna og embættismanna (og símtölum Seðlabankans í hruninu).
Sjálfstæðisflokkurinn er samt ekki allur undir sömu sök seldur. Skoðanakannanir sýna, að fjórðungur stuðningsmanna flokksins styður frumvarp Stjórnlagaráðs.
Það er eðlilegt, að gagngerar réttarbætur eins og þær, sem frumvarp Stjórnlagaráðs felur í sér, mæti andstöðu. Það er á hinn bóginn óeðlilegt, að andstæðingar frumvarpsins reyni að hindra framgang lýðræðisins með því að koma í veg fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, sem Alþingi hefur þráfaldlega lofað þjóðinni.
Lýðræðisöflin í landinu þurfa að standa þétt saman gegn Sjálfstæðisflokknum.
