Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor var kjörinn á stjórnlagaþing haustið 2010. Hann sat í stjórnlagaráði sem afhenti Alþingi frumvarp til stjórnskipunarlaga þann 29. júlí 2011.

Gott hjá DV

20. júní 2012 › 20:19

DV birtir í dag vandaða frétt eftir Baldur Guðmundsson blaðamann undir yfirskriftinni „Flest ríki banna langa valdasetu“. Þar er fjallað um takmarkanir á setu forseta í embætti í ýmsum löndum. Fréttinni lýkur með þessum orðum:


„... er Ísland í hópi fárra landa sem hafa engar takmarkanir á setu þjóðhöfðingja. Þetta kann þó að breytast nái stjórnarskrá stjórnlagaráðs fram að ganga. Þar segir að forseti skuli ekki sitja lengur en þrjú körtímabil. Nái frumvarpið um stjórnarskrána fram að ganga er ljóst að Ólafur Ragnar er síðasti forsetinn til að gegna embættinu lengur en 12 ár.“


Þessi frétt er sérstaklega lofsverð fyrir þá sök, að hún nefnir frumvarp Stjórnlagaráðs til sögunnar í samhengi við efni málsins. Margir fréttamenn á öðrum miðlum vanrækja þetta. Þeir láta eins og stjórnarskrármálið sé ekki á dagskrá eins og þeir séu að reyna að hjálpa til við að þegja málið í hel. Þeir fjalla um ýmis mál – hlutverk forsetans, fyrirkomulag fiskveiðistjórnarinnar og margt fleira – án þess að nefna, að Alþingi hefur ákveðið, að þjóðin segi álit sitt á frumvarpi Stjórnlagaráðs til samþykktar eða synjunar eigi síðar en eftir fjóra mánuði.


Ríkisstjórnin er að nokkru leyti seld undir sömu sök. Hún hefur t.d. lagt fram frumvarp um fiskveiðistjórnina án þess að leggja fram greinargerð um, hvort frumvarpið samrýmist frumvarpi Stjórnlagaráðs til nýrrar stjórnarskrár – frumvarpi, sem Alþingi hefur ákveðið að leggja í dóm þjóðarinnar. Hægri höndin þarf að vita hvað hin vinstri gerir.


Mannréttindanefnd SÞ ákvað um daginn að leysa ríkisstjórnina undan þeirri kvöð að bregðast frekar en orðið er við bindandi áliti nefndarinnar frá 2007 þess efnis, að fiskveiðistjórnarkerfið brjóti gegn mannréttindum. Nefndin leysir ríkisstjórnina úr snörunni með beinni skírskotun til mannréttindakaflans í frumvarpi Stjórnlagaráðs. Álykta verður, að án hans hefði mannréttindanefndin setið föst við sinn keip.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.