Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor var kjörinn á stjórnlagaþing haustið 2010. Hann sat í stjórnlagaráði sem afhenti Alþingi frumvarp til stjórnskipunarlaga þann 29. júlí 2011.

Kristján Eldjárn

10. júní 2012 › 10:17

Villa slæddist inn í grein Guðna Th. Jóhannessonar sagnfræðings um Kristján Eldjárn forseta Íslands í Fréttablaðinu í gær. Guðni segir þar alla ráðherra viðreisnarstjórnarinnar hafa stutt Gunnar Thoroddsen í forsetakjörinu, en það er ekki rétt. Hvorki Emil Jónsson utanríkisráðherra né Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráðherra studdu Gunnar Thoroddsen. Þeir Emil og Gylfi gættu þess vandlega að gefa ekkert upp um afstöðu sína til frambjóðenda. Viðreisnarráðherrarnir, sem studdu Gunnar, voru sjálfstæðisráðherrarnir fjórir og Alþýðuflokksráðherrann Eggert G. Þorsteinsson félagsmálaráðherra. Ég man þetta vel, var á staðnum.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.