ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 8.9° 3m/s SSW
Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason

Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor var kjörinn á stjórnlagaþing haustið 2010. Hann sat í stjórnlagaráði sem afhenti Alþingi frumvarp til stjórnskipunarlaga þann 29. júlí 2011.

Við siglum að settu marki

17:30 › 22. febrúar 2012

Alþingi samþykkti í dag að senda frumvarp Stjórnlagaráðs í þjóðaratkvæði að loknum sérstökum aukafundi þeirra ráðsmanna, sem eiga heimangengt með svo stuttum fyrirvara, í byrjun marz.


Þingið mun væntanlega leggja spurningar eða tillögur um lítils háttar breytingar á frumvarpinu fyrir ráðið, en þær spurningar eða tillögur hafa ekki enn verið birtar ráðsmönnnum og þá væntanlega ekki heldur öðrum. Alþingi hefur nú haft frumvarpið tli skoðunar í næstum sjö mánuði.


Þingsályktunartilllagan í dag var samþykkt með 31 atkvæði þingmanna allra flokka nema eins gegn 15. Þetta er næsti bær við 14:2. EInn flokkur, Sjálfstæðisflokkurinn, varð viðskila við alla hina.


Hissa varð ég á fjarvistum 16 þingmanna, einkum á stjórnarþingmönnunum Atla Gíslasyni, Birni Val Gíslasyni, Guðríði Lilju Grétarsdóttur, Katrínu Jakobsdóttur og Róberti Marshall, sem situr í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins, og einnig ráðherrunum Svandísi Svavarsdóttur og Ögmundi Jónassyni. Betur hefði farið á, að þau væru til staðar í atkvæðagreiðslu um svo mikilvægt mál. Ríkisstjórnin, sem sex þessara sjö alþingismanna standa enn að eða sitja í, hefur lofað nýrri stjórnarskrá. Orð skulu standa.


Af vef Alþingis: "16 þm. (AtlG, ÁJ, ÁsmD, BJJ, BVG, EyH, GLG, GÞÞ, JBjarn, KJak, ÓN, PHB, RM, SIJ, SSv, ÖJ) fjarstaddir."



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?