Innanríkisráðuneytið hefur nú úrskurðað að Jón Jósef Bjarnason, bæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar, sé ekki aðili að deilu um afgreiðslu bæjarráðs Mosfellsbæjar á sjálfskuldaábyrgð.
Þegar kjörnir fulltrúar hafa ekki lengur aðild að málefnum sveitarfélaga og afgreiðslu æðstu stofnanna þess á fjármálagjörningum sem lögfræðingar sveitarfélagsins vilja meina að standist ekki lög er fokið í flest skjól.
Í þessu tilfelli situr ríkisbankinn uppi með hinn fjárhagslega Svarta Pétur: veð sem duga ekki fyrir láni sem bankinn veitti einkaaðila svo einkaaðilinn gæti gert upp við sveitarfélag.
Velta má fyrir sér hvort hér sé ekki um fjársvik að ræða af hálfu sveitarfélagsins og einkaaðilans gagnvart ríkisbankanum.
Á dögunum greindi Smugan frá því að bankastjóri Landsbankans og formaður bæjarráðs, sem veitti bæjarstjóra heimild til að ganga frá samkomulaginu við bankann, væru bræður. Þrátt fyrir það vék formaður bæjarráðs ekki af fundi við afgreiðslu málsins.
Þeir myndu sjálfsagt heldur ekki flokkast sem tengdir aðilar fyrst bæjarfulltrúi er ekki talinn hafa aðild að afgreiðslu málsins.
