Ég komst loks yfir eintak af ljóðabókinn Gengismunur eftir Jón Örn Loðmfjörð.
Í henni eru ljóð sem eru unnin upp úr skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Við vinnslu ljóðanna notaðist Jón Örn við ljóðavél sem hann bjó til sjálfur, það er tölvuforrit sem býr til ljóð.
Mig langar að birta hér brot úr formálanum sem skrifaður er af Kára Páli Óskarssyni:
„Við hvað er átt er sagt þegar skýrlsan sé uppgjör við góðæristímann? Að héðan í frá ætlum við að halda áfram að búa við kapítalisma, en þó ekki jafn snartrylltan öfgakapítalisma og viðgekkst í góðærinu og dæma verstu peningafríkin í fangelsi? Eða að við ætlum að hætta að skipta gæðunum ójafnt? Annað af þessu er líklegra en hitt."
Fyrsta ljóðið í bókinn hljóðar svo:
enginn heyrir formlegt
eignarhald
enginn heyrir eigið lán

