Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ.

Betlarar mótmæla í Lagos

7. ágúst 2012 › 10:08

Í gær mótmæltu hundruð betlara friðsamlega við þinghúsið í Lagos, höfuðborg Nígeríu, þeirri stefnu borgaryfirvalda að betlarar séu fjarlægðir af götunum.  Vanguard greinir frá þessu.


Alhaji Jubril Hassan, forsvarsmaður samtaka fatlaðra, segir að það sé rangt af stjórnvöldum að fara þess á leit við betlara að þeir hætti að betla á götunum.  Þeir séu að nýta sín félagslegu réttindi.  Hassan sagði einnig að það væri ólöglegt að neita betlurum um þau grundvallarmannréttindi sem felast í ferðafrelsi.


Að sögn Hassan hafa betlarar fengið þau skilaboð að allir sem verði gómaðir við betl á götum Lagos verði sendir á endurhæfingarstöð.  Hassan upplýsti að í þeim tilfellum væru allar eignir viðkomandi gerðar upptækar, einnig að meðferðin og aðstaðan í endurhæfingarstöðinni væri ófullnægjandi og heilsuspillandi.  Þá greindi Hassan frá því að bráðlega gætu þeir sem láti ölmusu af hendi rakna átt von á tveggja ára fangelsisdómi.


Ritari samtakanna, Zakariwai Hassan, staðhæfði að 600 betlar, hið minnsta, hefðu verið handteknir af stjórnvöldum án þess að boðið væri upp á viðunandi úrræði í staðinn.  Hann hvatti stjórnvöld til að láta af harði stefnu sinni gagnvart betlurum og leyfa þeim að halda iðju sinni áfram.


Babandunde Panox, talsmaður stjórnvalda, tók á móti mótmælendum við þinghúsið og ráðlagði þeim að taka lögin ekki í sínar hendur.  Hann lofaði að stjórnvöld myndu finna lausn á vanda þeirra.


Að sögn BBC er fátækt vaxtandi vandamál í Nígeríu þrátt fyrir að landi sé ríkt af náttúruauðlindum á borð við Olíu.  Misskiptingin er mikil og næstum 100 milljónir, eða 61%, draga fram lífið á minna en dollara á dag.


 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.