Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ.

Örlæti Oddnýjar

18. ágúst 2012 › 01:32

Þann 4. júlí 2012 ákvað Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) að íslenska ríkið ætti að endurheimta ríkisaðstoð að andvirði 220 milljónir króna frá einkafyrirtækinu Verne sem rekur gagnver í Reykjanesbæ.  Ríkisaðstoðin var veitt árið 2008 þegar ríkið seldi Verne fimm byggingar á gamla varnarliðssvæðinu við Keflavíkurflugvöll undir markaðsvirði.  Muninn á markaðsvirði og söluvirði bygginganna fimm þarf að endurheimta frá fyrirtækinu. 


Reykjanesbær hefur að auki veitt Verne undanþágu frá fasteigna- og gatnagerðargjöldum frá árinu 2009. ESA hefur komist að niðurstöðu um að þessar undanþágur séu ósamræmanlegar EES-samningnum og skuli því einnig endurheimtar frá Verne. 


Í kvöldfréttum Stöðvar tvö þann 17. ágúst 2012 var greint frá því að Oddný Harðardóttir, fjármálaráðherra, hefði lagt til við ríkisstjórnina að íslenska ríkið höfði mál gegn ESA til að komast hjá því að endurheimta umrædda ríkisaðstoð.  Ekki voru gerðar athugasemdir við tillöguna á fundinum og því má gera ráð fyrir að málið verði til lykta leitt fyrir dómstólum.


Þetta eru merkileg tíðindi.  Ríkisstjórnin vill ekki endurheimta fé sem ESA hefur sagt að ríkið eigi inni hjá einkafyrirtæki.  Í staðinn ætlar hún að höfða mál gegn ESA til að losna undan endurheimtuskyldunni.  Hvernig sú afstaða samræmist hlutverki ríkisstjórnarinnar sem gæsluaðila almannahagsmuna er vandséð.


Hitt blasir þó við.  Að gjaldkeri Samfylkingarinnar er fyrrverandi stjórnarformaður Verne Holdings og skráður prókúruhafi sem bendir til þess að hann hafi þar hagsmuna að gæta.  En hvort það útskýrir örlæti Oddnýjar treysti ég mér ekki til að fullyrða um.  Aftur á móti verður að viðurkennast að þetta lítur mjög illa út.



Við undirritun samninga Verne Holdings ehf., Landsvikjunar og fleiri þann 26. febrúar 2008 um gagnaver á Keflavíkurflugvelli. Sitjandi eru Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvikjunar og Vilhjálmur Þorsteinsson stjórnarformaður Verne Holdings. Að baki þeim má m.a. sjá ráðherrana Össur Skarphéðinsson, Kristján Möller og Árna M. Matthiesen. Á bak við þá er Björgólfur Thor Björgólfsson.  Mynd af vef Landsvirkjunar.


(Færslan var uppfærð 19.8.2012 í samræmi við athugasemd Gunnars Tryggvasonar og samskipti síðuhaldara við Gunnar í framhaldi)



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.