Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ.

Skoðanakönnun eða þjóðaratkvæðagreiðsla?

10. ágúst 2012 › 12:53

Þar sem fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp stjórnlagaráðs er aðeins ráðgefandi skil ég við hvað er átt þegar kosningarnar eru kallaðar ,,skoðanakönnun".  Það engu að síður útúrsnúningur.  Fyrir þeirri skoðun minni get ég fært tvíþætt rök.

1. Framkvæmd skoðanakannanna
Þokkaleg skoðanakönnun er þannig framkvæmd að valið er úrtak úr þýði. Úrtakið spurt spjörunum úr og síðan er greind niðurstaða úrtaksins yfirfærð yfir á þýðið. Í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu er niðurstaðan háð öðrum lögmálum. Það er að hver og einn kosningabær maður tekur ákvörðun fyrir sig hvort hann gerist hluti af úrtakinu, það eitt og sér breytir algerlega lögmálunum. Þeir sem mæta á kjörstað ráða niðurstöðunni sem Alþingi mun svo fara eftir, eða ekki.

2. Eðli máls
Málið hefur allt annan sess í samfélaginu heldur en ef einhver sem framkvæmir skoðanakönnun myndi hafa samband til að spyrja þig hvern þú ætlar að kjósa í næstu Alþingiskosningum eða hvaða vörumerki þér dytti fyrst í hug þegar þú heyrðir tiltekið orð.  Hér er á ferð liður í ákveðnu ferli sem snýst um formlegan grundvöll okkar samfélgas, sjálfa stjórnarskrána. Ferli sem hófst með þjóðfundi sem skilaði af sér niðurstöðu, aðkomu stjórnlaganefndar og kosningum til stjórnlagaþings. Stjórnlagaþingið varð þó á endanum að Alþingisskipuðu stjórnlagaráði vegna þess sem í ljósi niðurstöðu kæru öryrkja út af nýafstöðnum forsetakosningum dregur í besta falli úr trúverðugleika hæstarétts og í versta falli má kalla pólitískan dóm.

Sú pólitík sem þar um ræðir er til þess fallin að grafa undan vægi málsins í vitund almennings. Að uppnefna þjóðaratkvæðagreiðsluna um frumvarp stjórnlagaráðs, þó ráðgefandi sé, ,,skoðanakönnun" er í þeim anda.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.