Lífeyrissjóðir eru í 668 milljarða 'tryggingafræðilegum' mínus samkvæmt FME.
Margir átta sig á að ósjálfbært sjóðsöfnunarkerfi með óraunhæfri 3,5% raunávöxtunarkröfu er liðið undir lok.
Viðskiptablokkir hafa hins vegar náð yfirráðum yfir sjóðunum í gegnum samtök atvinnurekenda og verkalýðshreyfinguna og nýta þá miskunnarlaust í eigin þágu. Þessir aðilar vinna gegn hvers kyns kerfisbreytingum.
Ég hef þá trú að lýðræðislega kjörnar stjórnir séu betur í stakk búnar til að takast á við vanda sjóðanna heldur en þeir aðilar sem nú ráða för.
Þess vegna vona ég að í næstu Alþingiskosningum verði hægt að kjósa framboð sem muni beita sér fyrir lagasetningu um að sjóðsfélagar kjósi sjálfir í stjórn sjóðanna.
