Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ.

I Dagurinn

21. júlí 2012 › 21:22

Eftir að hafa fylgst með fréttum af fjöldamorðunum í Noregi þann 22. júlí 2011 og viðbrögðum fólks við þeim runnu á mig tvær grímur.  Það var ljóst að morðin yrðu sett í pólitískt samhengi, sama hvað hver myndi segja, enda tilefni til.  Árásin beindist að norska stjórnkerfinu og sér í lagi norska Verkamannaflokknum sem fer fyrir ríkisstjórn. Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Norges, sagði í minningarathöfn Verkamannaflokksins sem fram fór 29. júlí 2011, að fjöldamorðin sem kostuðu sjötíu og sjö manns lífið væru árás á lýðræðið í Noregi.[1] Þá voru fimmtán hinna látnu á framboðslistum Verkamannaflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í september 2011.[2] Bæði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherrra og formaður Samfylkingarinnar - jafnaðarmannaflokks Íslands og Guðrún Jóna Jónsdóttir, formaður Ungra jafnaðarmanna, voru viðstödd athöfninna en formönnum systurflokka Verkamannaflokksins og ungliðahreyfinga þeirra var boðið.[3] Öllu pólitískara verður það varla.


En hvað gerðist eiginlega í Osló og Utøya þennan örlagaríka dag?  Förum aðeins yfir atburðarásina:  Klukkan 15.22 að staðartíma sprakk mjög öflug sprengja sem komið hafði verið fyrir í Volkswagen Crafter bifreið í stjórnarráðshverfinu í miðborg Oslóar.  Eldur kviknaði af völdum sprengjunnar í skrifstofum forsætisráðherra og í olíu- og orkumálaráðuneytinu.[4] Fljótlega eftir að sprengjan sprakk var staðfest að sjö manns hefðu látið lífið í sprengingunni og að tveir væru alvarlega særðir.  Margir til viðbótar urðu fyrir minniháttar meiðslum.[5] Flestir særðust þegar glerbrotum úr forsætisráðuneytinu og nærliggjandi húsum rigndi yfir götuna.  Alger ringulreið skapaðist á svæðinu.  Alblóðugt fólk sást liggjandi á götunni og vegfarendur sáu lík hanga út um glugga.[6] Rúmlega tveim klukkustundum síðar, klukkan 17.27, var lögreglu gert viðvart um skotárás í Utøya þar sem um 560 manns voru staddir á vegum ungliðahreyfingar Verkamannaflokksins.  Röð alvarlegra mistaka lögreglu olli því að hún komst ekki út í eynna fyrr en klukkan 18.25.[7] Árásarmaðurinn var handtekinn tveim mínútum síðar.[8] Sextíu og níu manns féllu í og við Utøya af hans völdum.  Nokkrum dögum síðar var upplýst að átta manns hefðu dáið af völdum sprengjunnar í Osló,[9] 18 manns lægju enn á spítala af völdum árásanna og þar af væru 5 í lífshættu.[10]


Utøya er lítil eyja í Tyrifjorden 38 kílómetra norðvestur af Osló.  Eyjan sem er í 550 metra fjarlægð frá landi hefur verið í eigu AUF, ungliðahreyfingar Verkamannaflokksins, frá því 1950.  Um margra ára skeið hefur ungliðahreyfingin slegið upp sumarbúðum í eynni.[11] Augljóslega skipar eyjan sérstakan sess í hugum norskra jafnaðarmanna ef marka má orð Stoltenberg á blaðamannafundi daginn eftir árásirnar: „Fyrir mér er Útey paradís æsku minnar, sem í gær var breytt í helvíti."[12] Árásarmaðurinn komst út í eynna á bát í eigu AUF.  Hann var dulbúinn sem lögreglumaður og sagðist vera í reglubundnu eftirliti vegna sprengingarinnar í Osló.  Monica Bøsei, 45 ára gömul kona sem stjórnaði starfseminni í Utøya og gekk undir nafninu „mamma Útey" var um borð í bátnum sem flutti árásarmanninn í eynna.  Hún var líka ein af þeim fyrstu sem féll í eynni af völdum árásarmannsins.  Håkon Sandbakken, 19 ára varaformaður AUF í Bærum, sem einnig var í bátnum greindi TV2 frá því að hann hefði heyrt samtal Bøsei og árásarmannsins um borð.  Samtalið snérist um sprenginguna í Osló en að sögn Sandbakken var árásarmaðurinn tregur til viðræðna við Bøsei.  Það vakti upp grunsemdir hjá Bøsei sem hafði langa reynslu af samstarfi við lögregluna.  Þegar í eynna var komið arkaði hún rakleitt í aðalbygginguna þar sem öryggisvörður var staddur.  Að sögn Sandbakken áttaði árásarmaðurinn sig á þessu, dró upp vopn og tók þau bæði af lífi í húsinu.  Margir sem TV2 ræddi við eru sannfærðir um að grunsemdir Bøsei gagnvart árásarmanninum hafi komið í veg fyrir enn meiri hrylling.  Inni í húsinu þar sem Bøsei og öryggisvörðurinn voru myrt fannst sprengiefni.  Árásarmaðurinn hefði því verið búinn að gera áætlun, en eitthvað truflað hana. Ef ekki þá hefði hann sprengt efnið.[13]


Frásagnir þeirra sem komust lífs af í Utøya eru martröð líkastar.  Fólk hefur lýst því hvernig árásarmaðurinn gekk skipulega og yfirvegað til verks og skaut á alla sem urðu á vegi hans.  Fram hefur komið að hann hafi verið undir áhrifum örvandi lyfja við verknaðinn.[14] Að jafnaði drap hann um það bil einn mann á mínútu þann tíma sem hann var í eynni.  Fólk reyndi þó að fela sig hvar sem það gat.  Margir tóku til sunds og freistuðu þess að flýja þannig undan árásinni.  Sumir snéru aftur í eynna þegar þeir sáu að þeir kæmust ekki alla leið yfir á fastlandið.  Einhverjir drukknuðu á flótta, aðrir voru skotnir í vatninu af árásarmanninum en mörgum var bjargað úr eynni og á sundi af almennum borgurum á eigin bátum.  Þeir hunsuðu tilmæli lögreglu um að halda sig fjarri eynni og voru, samkvæmt frétt á vef Morgunblaðsins, á undan lögreglunni til bjargar ungmennunum:



„Line segist hafa farið sjö ferðir á bátnum sínum þrátt fyrir að lögreglan hafi varað fólk við því að koma nálægt eyjunni. Hún hafi flutt um sex manns í land í hvert skipti og síðan flutt þá á bifreið sinni á neyðarmóttöku. Heimildarmaður AFP segir að Line hafi bjargað yfir 40 manns."[15]



Á vef Vísis mátti lesa:



„Þýski ferðamaðurinn Marcel Gleffe bjargaði til dæmis 20 manns á árabáti sem hann hafði á leigu.  Með líkum hætti kom Otto Løvik 40 til 50 ungmennum til bjargar.  Løvik var í sumarleyfi nálægt Útey og hafði aðgang að báti.  Hann þekkti skothljóðin strax og lét það ekki stöðva sig þótt árásarmaðurinn skyti í átt að bátnum."[16]



Í samtali við NRK sagði hinn 22 ára gamli Thorbjørn Vereide:  „Hann passaði sig á því að skjóta alla tvisvar.  Hann skaut vini mína sem reyndu að synda í land og fólk sem reyndi að fela sig í tjöldunum eða í skóginum."[17] Adrian Pracon sem særðist í árásinni sagði í viðtali við CNN að hann hefði lifað af vegna þess að hann og tveir aðrir hefðu lagst niður innan um lík og látist vera dauðir.  „Ég fann andardrátt hans.  Ég heyrði í stígvélum hans.  Ég var of hræddur til að opna augun," sagði Adrian um hversu nálægt morðingjanum hann var.  Þá sagðist árásarmaðurinn ætla að drepa alla í eynni og að enginn ætti að lifa þetta af.[18]


Fram hefur komið að ætlun árásarmannsins hafi verið að myrða einnig „landsmóðurina"[19] Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, sem ávarpaði fund AUF á Utøya tveimur klukkustundum áður en árásarmanninn bar að garði.[20] Segja má að umferðarslys sem varð í Osló upp úr klukkan tvö að staðartíma þennan dag og olli talsverðum töfum á umferð hafi reynst lán í óláni.  Árásarmaðurinn hefur upplýst að honum hafi seinkað vegna umferðarteppunnar.  Sprengjan hafi því átt að springa fyrr um daginn þegar fleiri væru í miðborginni og árásarmaðurinn hafi ætlaði sér að vera kominn fyrr til Utøya en raun varð.[21] Þannig hafi áætlun hans um að ráðast á elstu og yngstu kynslóð Verkamannaflokksins í sömu andrá ekki gengið eftir.  Árásarmaðurinn hefur auk þess upplýst að hann ætlaði sér að sprengja tvær sprengjur til viðbótar í miðborg Oslóar þennan dag, en fyrrgreint umferðaröngþveiti hefur væntanlega afstýrt því.[22] Norska blaðið VG hefur greint frá því að umræddir staðir séu höfuðstöðvar Verkamannaflokksins og konungshöllin.[23] Norska lögreglan hefur hins vegar ekki viljað staðfesta það.[24]


Ekki var liðinn langur tími frá því fyrstu fréttir af sprengingunni bárust þar til ýmsir álitsgjafar voru farnir að tjá sig um atburðinn.  RÚV greindi meðal annars frá því að John Drake, starfsmaður öryggisráðgjafafyrirtækis í London, sæi líkindi með sprengingunni í Osló og sjálfsmorðssprengjuárásinni sem gerð var í Stokkhólmi í desember 2010.[25] Sú árás misheppnaðist þó að sögn Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar,[26] en afleiðingar árásarinnar í Stokkhólmi voru að árásarmaðurinn lést og tveir særðust lítillega.  Sú árás var framin vegna þátttöku Svía í stríðinu í Afganistan og skopmynda sænsks teiknara af Múhammeð spámanni en Svíar halda úti um 500 manna herliði í Afganistan.[27] Í frétt RÚV sagði orðrétt:  „Líklegast er talið að þátttaka Norðmanna í hernaðinum í Afganistan og Líbíu sé skýringin á að hryðjuverkamenn ráðast nú gegn landinu."[28] Í fréttinni var einnig tekið fram að norski herinn hafi um 400 hermenn í Afganistan og að Norðmenn hefðu tekið þátt í aðgerðum NATO í Líbýu.  Í því sambandi má geta þess að vefur Morgunblaðsins upplýsti þann 27. apríl 2011 að bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefði greint frá því að tvær norskar F-16 herþotur hefðu skotið á heimili Gaddafi í Tripoli.[29] Þá greindi Reuters frá því þann 30. apríl 2011 að sonur Gaddafi og þrjú barnabörn hans hefðu látist í sprengjuárás NATO á heimili Gaddafi.[30] Þá hefur NATO viðurkennt ábyrgð sína á mannfalli meðal almennra borgara í Líbíu.[31]


Upp úr sjö um kvöldið að íslenskum tíma birti DV frétt á vef sínum undir fyrirsögninni: Öfgasinnaðir múslimar lýsa yfir ábyrgð - Hryðjuverkahópur sem kveðst hafa staðið fyrir árás í Svíþjóð árið 2010.[32] Í millitíðinni höfðu þó borist fregnir af skotárásinni á Utøya og handtöku árásarmannsins.  Í fréttinni sagði meðal annars:



„Enn er mjög óljóst hver gæti hafa verið að verki enda var skotmaðurinn í Útey ljóshærður og af norrænum ættum. En það útilokar ekki að árásin hafi tengst Al-Kaída enda er ljóst að samtökin vita að yfirvöld horfa sérstaklega til litaðra manna, eða araba, í öllu eftirliti í tengslum við hryðjuverk. Það er því alls ekki ómögulegt að maðurinn hafi tengst samtökunum og hafi verið fenginn til verksins til þess að villa um fyrir yfirvöldum. En ýmis konar samtök liggja undir grun og í því samhengi hafa verið nefndir hópar öfga-hægri manna, nýnastista og í raun hvers konar öfgamanna. Þá gæti maðurinn einnig hafa verið einn á ferð. En ljóst er að Al-Kaída-samtökin hafa sterkasta tilefnið til þessarar árásar."



Athugasemdir við fréttina létu ekki á sér standa.  Þó þær hafi ekki allar verið af sama meiði og þær sem endurbirtar eru hér eru neðangreindar tilvitnanirnar til merkis um þá orðræðu sem fyrirfinnst á íslenskum netsíðum:



„Geta þessir helvítis öfgamúslimar [ekki] sprengt hvern annan í loft upp og skotið, illilega sködduð skriðkvikindi."


„Enn reyna illa gefnir Íslendingar að verja þessa viðbjóðslegu öfgamússa. Óskiljanlegur andskoti!"


„Fólk á að opna augun, ekki bíða eftir hryðjuverkum á Íslandi. Múslimum á ekki að veita landvist hér á landi."


„Ósmekklegt eða ekki.. ég get ómögulega tiplað varlega í kringum ykkar viðkvæma tilfinningalíf þegar kemur að hættulegustu glæpamafíu veraldar. Þetta er eins og að renna sér í vörn fyrir barnaníðinga vegna ómaklegs orðspors. -Þurfa þessir glæponar að koma við heima hjá þér svo þú áttir þig á alvörunni? Makalaus svona einfeldningsháttur."


„Blessaðir múslimarnir, endilega tökum við þeim öllum sem flóttamönnum og innflytjendum, þeir drepa að vísu alltaf hluta af innfæddum í löndunum sem þeir setjast að í en látum það ekki trufla okkur. Því miður hefnist Norðmönnum fyrir gestrisnina."


„Það er greinilegt að geðsjúklingarnir og hryðjuverkavinirnir í Ísland Palestína eru að kommenta hér á fullu. Mikið skelfing væri það nú kaldhæðnislegt og grátlega broslegt ef þetta lið yrði einn daginn statt nákvæmlega á stund og stað þar sem svona öfl láta til skara skríða."



Heimild DV fyrir fréttinni er vefur New York Times.  Þar á bæ var að sögn DV greint frá því að Will McCants, starfsmaður hjá stofnuninni C.N.A, sem er greiningarstöð tengd bandaríska sjóhernum, hafi upplýst að stofnuninni hafi borist yfirlýsing frá hópnum Ansar al-Jihad al-Alami.   Hópurinn hafi lýst yfir ábyrgð sinni á hryðjuverkaárásunum í Noregi sem hefnd fyrir veru norska hersins í Afganistan.  DV greinir í sömu frétt frá því að sérfræðingur um hryðjuverkahópa hafi sagt BBC að hópurinn sé ekki á bak við aðgerðirnar. Einnig að Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, segi of snemmt að álykta hver hafi staðið fyrir árásunum og að á vef New York Times sé sá varnagli sleginn að þetta hafi ekki fengist staðfest heldur byggi á vitnisburði McCants.[33] Nokkrum klukkustundum síðar fékkst staðfest að þessi hópur hefði ekkert með árásirnar að gera.  Þá leikur meira að sega vafi á því hvort hann sé til yfir höfuð.[34]




[1] http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/07/29/ras_a_lydraedid/
[2]
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/08/01/fimmtan_hinna_latnu_voru_a_frambodslistum/
[3]
http://www.samfylkingin.is/Frettir/ID/3150/Johanna_Sigurardottir_og_Gurun_Jona_Jonsdottir_vistaddar_minningarathofn_i_Oslo
[4]
Atburðarásin á föstudag, Fréttablaðið 25. júlí 2011, bls. 4
[5]
http://www.ruv.is/frett/sjo-sagdir-hafa-latid-lifid
[6]
http://www.ruv.is/frett/tveir-latnir-i-hrydjuverkum-i-oslo
[7]
http://www.ruv.is/frett/rod-mistaka-logreglu-i-utey
[8]
http://www.dv.is/frettir/2011/7/28/haldid-i-fleiri-tima-eyjunni/
[9]
http://eyjan.is/2011/07/25/norsk-logregla-leidrettir-tolur-yfir-fjolda-latinna-68-letust-a-utoya-en-8-i-sprenginunni-i-oslo/
[10]
http://www.ruv.is/frett/rod-mistaka-logreglu-i-utey
[11]
http://no.wikipedia.org/wiki/Ut%C3%B8ya
[12]
http://www.ruv.is/frett/paradis-aeskunnar-breytt-i-helviti
[13]
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/07/24/mamma_utey_var_skotin_fyrst/
[14]
http://www.ruv.is/frett/breivik-var-a-orvandi-lyfjum
[15]
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/07/24/bjorgudu_tugum_ungmenna/
[16]
http://www.visir.is/thjodverji-bjargadi-20-ungmennum-af-utey/article/2011707269975
[17]
http://www.visir.is/passadi-sig-a-thvi-ad-skjota-alla-tvisvar/article/2011110729539
[18]
http://www.ruv.is/frett/hann-sagdist-aetla-ad-drepa-alla
[19]
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/07/23/kalladi_gro_harlem_landsmordingja/
[20]
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/07/25/aetladi_ad_radast_a_gro_harlem/
[21]
http://www.ruv.is/frett/umferdartafir-bjorgudu-lifum
[22]
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/07/25/aetladi_ad_radast_a_gro_harlem/
[23]
http://www.mbl.is/frettir/forsida/2011/07/30/konungshollin_var_naest/
[24]
http://www.ruv.is/frett/samvinnuthydur-vid-yfirheyrslur
[25]
http://www.ruv.is/frett/likindi-med-stokkholmsaras
[26]
http://www.mbl.is/frettir/sjonvarp/53819/?cat=erlent
[27]
http://www.evropuvaktin.is/frettir/17122/
[28]
http://www.ruv.is/frett/likindi-med-stokkholmsaras
[29]
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2011/04/27/nordmenn_vilja_ekki_stadfesta_aras/
[30]
http://www.reuters.com/article/2011/04/30/us-libya-attack-idUSTRE73T2HV20110430
[31]
http://www.news.com.au/breaking-news/nato-admits-causing-libya-civilian-deaths/story-e6frfku0-1226078717878
[32]
http://www.dv.is/frettir/2011/7/22/ofgasinnadir-muslimar-lysa-yfir-abyrgd/
[33]
http://www.dv.is/frettir/2011/7/22/ofgasinnadir-muslimar-lysa-yfir-abyrgd/
[34]
http://www.nytimes.com/2011/07/23/world/europe/23oslo.html?pagewanted=2&_r=2&hp



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.