Ég held að ég verið að endurskoða þetta með Svarta-Pétur stóra kappræðumálsins eftir daginn í dag. Stöð tvö rændi honum af Ólafi Ragnari.
Senunni stálu hinsvegar Andrea, Ari Trausti og Hannes. Þau eiga hrós skilið fyrir að afhjúpa léleg vinnubrögð Stöðvar tvö í þessu máli.
Á framboðssíðu Andreu á Facebook er eftirfarandi texta að finna:
,,Til þess að útskýra þessa útgöngu okkar Ara Trausta og Hannesar er rétt að upplýsa fólk um það hvers vegna okkur var verulega misboðið, því við höfðum í raun ekki tækifæri til að semja yfirlýsingu um allan aðdragandann.
1. Þóru og Ólafi Ragnari var eingöngu boðið - ameríski stíllinn og best að útiloka bara alla hina strax fyrst þeir eru ekki með nema lítið fylgi þrátt fyrir að umræðan sé alls ekki hafin að neinu marki.
2. Þóra tók sér þrjá daga til að hugsa málið eftir að hún hafði þegið boðið - hún stillti að lokum Stöð 2 upp við vegg og neitaði þátttöku - sem var góð ákvörðun þótt hún hafi tekið langan tíma fyrir hana.
3. Stöð 2 reynir að redda sér, búin að selja auglýsingar fyrir þáttinn og sendir okkur hinum boð um að koma, án þess að útskýra nokkuð um fyrirkomulagið annað en það verði spurningar fundarstjóra og spurningar úr sal og af Twitter. Við gerðum öll ráð fyrir því að þá yrði fyrirkomulaginu breytt þannig að við yrðum öll saman á sviði.
4. Ari Trausti kemst að því um kl. 14-15 í dag að fyrirkomulagið eigi að vera eins og upphaflega var ætlunin, en núna á að stilla upp tveimur og tveimur frambjóðendum í einu og í stafrófsröð - en hvað kemur sér vel fyrir Stöð 2 að Ólafur og Þóra eru síðust í stafrófinu ;)
5. Við hin ráðum ráðum okkar, var öllum misboðið.. Við ákveðum að biðja kurteisislega og vinsamlega um að það verði dregið um hverjir lenda saman og sendum frá okkur sameiginlega fréttatilkynningu - en okkur þótti reyndar öllum eðlilegast að við hefðum verið öll í einu á sviðinu og fengið jöfn tækifæri til að bregðast við.
6. Stöð 2 bregst illa við þessu og heldur fund - niðurstaðan er eins, NEI við drögum ekki, þetta verður svona - það er búið að ákveða þetta.
7. Klukkan er orðin næstum 19 á þessum tíma og ég og Ari Trausti og Hannes ákveðum að lesa yfirlýsingu upp í beinni þar sem við erum komin á staðinn og svona illa og ófaglega er staðið að verki, að við göngum út.
8. Niðurstaða okkar var því að við gátum ekki látið viðgangast að misbjóða okkur og lýðræðinu með þessum hætti. Virðingin var engin og ekki hægt að láta þetta viðgangast og láta eins og ekkert væri."
Ari Trausti gerir málinnu einnig skil á sinni síðu:
,,Vegna atburðanna á Stöð 2:
Ég ( eins og Andrea, Hannes og Herdís) mætti til leiks eftir að hafa komist að því (kl. 13.11 í dag - að eigin frumkvæði) að Stöð 2 var í raun ekki að skipuleggja kappræður heldur spurningar og svör frá okkur frambjóðendum. Við komum í Hörpu í góðri von og af skyldu við kjósendur eftir að hafa unnið fréttatilkynningu fjögur saman. Í henni var einföld krafa um að Stöð 2 drægi um röð mælenda, bæði í tíma og eins til að ákveða hverjir stæðu saman til svara - þannig að Þóra og Ólafur stæðu ekki, nema þá fyrir tilviljun, undir lokin sem par. Um þá stöðu hafði meðal annars gagnrýni fjöldans snúist og einnig var ljóst að fólk vildi fá umræður allra sex frambjóðenda - maður á mann - ég t.d. að ljóða á Þóru og öfugt, enda fundurinn auglýstur sem slíkur.
Okkur þótti þetta einföld, skýr, lýðræðisleg og sjálfsögð lágmarksbeiðni sem auðvelt væri að bregðast við og við fórum þar með ekki fram á sex manna kappræður enda fyrirvari of stuttur til slíkra breytinga. Stöð 2 hafði ekki samband í eftirmiðdaginn eins og eðlilegt hefði verið sem viðbrögð við fréttatilkynningunni og þegar ljóst var við komu í Hörpu að við vildum breytingar tók það klukkustund að koma með afsvar: Vegna tæknilegra örðugleika var ekki hægt að koma til móts við okkur. Það sýnir sig síðar að vera meira en umdeilanlegt því eftir brottför okkar gekk þátturinn sinn gang með gjörbreyttu tæknilegu fyrirkomulagi.
Yfirlýsinguna lásum við Andrea en Hannes stóð þétt að baki okkar:
"Ljóst er að sá kappræðufundur sem okkur var boðið til er í raun fundur með spurningum og svörum til tveggja frambjóðenda í einu og þar með fjarri öllum umræðum frambjóðendanna sex. Þóra og Ólafur Ragnar standa saman í lokin eins og upphaflega var áætlað. Sem lágmarks lýðræðiskröfu höfum við sett fram þá eindregnu beiðni - gerðum það síðdegis í dag - að dregið yrði um röð frambjóðenda, bæði hvað varðar tímaröð og einstaklinga sem standa saman. Þessu hafnar fjölmiðillinn af tæknilegum ástæðum innan við klukkustund fyrir útsendingu. Að þessu fengnu ákveðum við, Andrea, Hannes og Ari Trausti, að yfirgefa fundinn og skorum á Þóru og Ólaf Ragnar að gera slíkt hið sama. Okkur er misboðið. Lýðræði er jafnrétti. Jafnrétti er mannréttindi."
Herdís kaus að sitja áfram og virðum við þrjú hennar viðhorf og hún okkar.
Ég harma orð umsjónarmanns á vegum Stöðvar um að ég eða við seilumst með gjörðum okkar til dagskrárgerðar fyrirtækisins. Þau eru tilbúningur."
