Þórður Björn

Þórður Björn

Þórður Björn Sigurðsson er varabæjarfulltrúi Íbúahreyfingarinnar í Mosfellsbæ.

Ólafur Ragnar situr uppi með Svarta-Pétur

3. júní 2012 › 01:20

Burt séð frá aðdragandanum að þeirri ákvörðun Þóru Arnórsdóttur að afþakka boð Stöðvar tvö um þátttöku í kappræðunum á sunnudagskvöldið var ákvörðun hennar hárrétt.


Með ákvörðun sinni tók Þóra stjórn á atburðarrásinni og stillti Stöð tvö upp við vegg sem neyddist til að bjóða öllum frambjóðendum að vera með.  Hinn valkosturinn fyrir Stöð tvö hefði verið að sitja uppi með ekkert sjónvarpsefni, færri auglýsingar og minni tekjur.


Þó fátt sé hægt að segja um lýðræðisást Stöðvar tvö, annað en að henni virðist varla vera til að dreifa, er það Ólafur Ragnar Grímsson sem situr uppi með hinn lýðræðislega Svarta-Pétur í þessu máli.


Að því er best er vitað staðfesti Ólafur Ragnar komu sína í kappræðurnar fyrirvaralaust og brást auk þess á engan hátt við þeirri réttmætu gagnrýni sem að honum beindist í kjölfarið.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.